Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Fréttir

Fréttir FÍ - RSS

27.7.2010

Dásemdir Djúpárdals

23 manna hópur gekk um helgina um Núpaheiði, Kálfafellsfjall og Fossabrekkur í Djúpárdal undir leiðsögn Páls Ásgeirs og Rósu Sigrúnar. Þessi ferð ber yfirskriftina: Á vit fossana í Djúpárdal en hápunktur hennar er að koma í Fossabrekkur og standa við fótskör Bassa, sem er stærstur fossa í Djúpá. Hann steypist fram í hamrakór þar sem einnig falla fram fossandi ferskvatnslindir úr aragrúa fossa í hrauninu.
Í ferðinni eru ennfremur rannsakaðar fjölbreyttar myndir stuðlabergs, komið í eftirsóttustu hellutaksnámu sunnanlands og í lok ferðar gæða menn sér á alvöru kjötsúpu eldaðri af húsmæðrum í Fljótshverfi.
Sjá myndir hér.

27.7.2010

Hópmynd úr Þjórsárverum



Það var fríður hópur göngugarpa sem kom úr 6 daga ferð FÍ í Þjórsárver sl. sunnudag.  Gísli Már Gíslason og Þóra Ellen Þórhallsdóttir vistfræðingar voru fararstjórar. 

26.7.2010

Norður við fjölvindahaf

Ferðafélag Íslands hefur gefið út fræðsluritið Norður við fjölvindahaf sem Hallvarður Guðmundsson úr Hlöðuvik ritar.  Hallvarður (faðir Guðmundar Hallvarðssonar)  hefur í þessu riti tínt til gagnmerkan fróðleik um Hlöðuvík og æskuslóðir sinar.  Fjallað er um fyglinga og bjargsig en jafnframt um örnefni í Hælavíkurbjargi, Hælavík og á leiðinni milli Hlöðuvíkur og Hesteyrar; og eru öll nöfn sett inn á skírar loftmyndir.  Hér er þó engin nafnaþula á ferð, nöfnunum fylgja gjarnan sögur, spaugilegar eða hamrænar en aldrei hversdagslegar, sem gefa okkur nútímafólki sýn inn í lif og lífsbaráttu fyrri tíðar fólks við fjölvindahaf.  Ritið fæst á skrifstofu FÍ og kostar kr. 1900.

26.7.2010

Áheitaganga gekk vel

Ferðafélag Mýrdælinga stóð fyrir áheitagöngu nú fyrir skömmu.  Það voru 22 sem hófu gönguna við Deildará og luku henni allir. Gangan tók um 6,5 klst. 242.700 kr söfnuðust. Ferðafélag Mýrdælinga  þakkar fyrirtækjum og einstaklingum sem hétu á gönguna, þeim sem gengu og öllum öðrum sem hjálpuðu til með einhverju móti.

22.7.2010

30 manns í Þjórsárver með Þóru Ellen og Gísla Má

30 manns eru nú í sumarleyfisferð FÍ í Þjórsárver með Þóru Ellen Þórhallsdóttur og Gísla Má Gíslasyni sem Þúfuverfararstjórum.  Þóra Ellen og Gísli Már eru í hópi fremstu vistfræðinga landsins og hafa bæði stundað rannsóknir í Þjórsárverum um langt skeið.  Á upphafsdegi ferðarinnar lék veðurblíðan við ferðalanga og útsýnið og náttúrufegurðin var himneskt.

Á döfinni

Árbók FÍ 2010 - Friðland að Fjallabaki

                              

Árbók Ferðafélags Íslands fjallar að þessu sinni um Friðland að Fjallabaki en þar eru Landmannalaugar og nágrenni í öndvegi. Höfundur bókarinnar er Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ.   

 

PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Forsíða

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd