Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Félagslíf



Ferðafélag Íslands er áhugamannafélag.  Gott félagslíf er mikilvægt í starfi félagsins og fer það fram með ýmsum hætti. Fyrir utan hefðbundið starf í fjölmörgum nefndum félagsins er einnig brugðið á leik og slegið á léttari strengi, meðal annars með myndakvöldum, spilakvöldum, danskvöldum og ýmsu fleiru.  Myndakvöldin njóta alltaf vinsælda í félaginu, og góður kjarni félagsmanna tekur relgulega í spil í risinu.

  • Frá hausti til vors efnir Ferðafélagið til myndasýningar eða kvöldvöku í hverjum mánuði. Á myndakvöldum er gjarnan rifjaðar upp ferðir frá liðnu sumri en á kvöldvökum er yfirleitt valið efni er tengist náttúru, menningu eða sögu Íslands.
    Þessir fundir hafa ekki aðeins orðið þátttakendum til ánægju heldur gegna þeir miklu hlutverki við að tengja félaga saman. Hér hittast ekki aðeins þeir, sem saman hafa verið á rölti, vaðið ár eða klifið fjöll. Til fundanna koma einnig aldnir Ferðafélagsmenn sem skoða á ný löngu gengnar leiðir í nýju ljósi.

  • Félagsvist er með relgulegum hætti í risinu, þar sem góður hópur félaga kemur saman og spilar eina kvöldstund.

  • Frágangs/vinnuferðir eru einnig hluti af félagsstarfi félagsins en þá fer góður hópur sjálfboðaliða í félaginu í skála félagsins og tekur til hendinni við lagfæringar og uppbyggingu og ferðaskálum félagsins.  Í þessum ferðum er jafnan endað með grillveislu, söng og kvöldvöku.

  •   

PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Ferðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortSafnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Félagslíf

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd