Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

Eitt fjall á viku

Laugardaginn 13. mars ganga hóparnir á fjöll sem hér segir:

Vesturbær gengur á Valahnúka og í Valaból kl. 9

Brottför úr Mörkinni 6 kl. 8.30,VR húsinu og BYKO í Kópavogi bílastæði kl. 8.30
Ekið í Hafnarfjörð, framhjá hesthúsabyggðinni og áleiðis að Helgafell ofan Hafnarfjarðar og að bílastæðinu við Kaldársel, skilti merkt Kaldársel vísa leiðina.

Austurbæ gengur á Helgafell ofan Mosfellsbæjar kl 9

Brottför úr Mörkinni 6 og Shell við Vesturlandsveg kl. 8.30
Ekið í gegnum Mosfellsbæ, inn Mosfellsdal áleiðis til Þingvalla en strax á hægri hönd (ca 500 m) eftir að beygt er af Vesturlandsvegi er bílastæði  þar sem við leggjum og ganga hefst.

Þorparar ganga á Keili kl. 9
Brottför úr Mörkinni 6 kl. 8.15
Ekið sem leið liggur áleiðis til Keflavíkur. Skömmu áður en komið er að afleggjara til Grindavíkur er skilti á hægri hönd merkt Keili / Höskuldarvellir, eftir að ekið hefur verið undir Reykjanesbraut og áleiðs að Keili er beygt til hægri strax þegar komið er að námum,  þar í gegnum hlið og þeim vegi fylgt að bílastæði við upphaf gönguleiðar á Keili.

Laugardaginn 20. mars ganga hóparnir á fjöll sem hér segir:

Vesturbær gengur á Arnarfell og Hrafnabjörg kl 9
Brottför frá Mörkinni 6 kl. 8.  Ekið til Þingvalla, gegnum þjóðgarðinn áleiðis að Arnarfelli sem er lítið fell við norð - austurenda Þingvallavatns. Frá bílastæði er gengið á Arnarfell, stutt ganga og góð upphitun fyrir Hrafnabjörg.  Eftir að göngu á Arnarfell er lokið er ekið upp á Bláskógaheiði en beygt er til vinstri við gíginn Tintron og ekið jeppaslóða að bílastæði austan við Hrafnabjörg þar sem ganga hefst.  Áætluð koma til Reykjavíkur er kl. 15.

Austurbær gengur á Vífilsfell úr námu kl. 9
Brottför úr Mörkinni 6  og Shell við Vesturlandsveg kl. 8.15.  Ekið áleiðis til Selfoss en skömmu áður en komið er að Litlu kaffistofunni er beygt að Vífilsvelli og ekið að námum undir fjallinu.  Áætlaður komutími til Reykjaívkur

Þorparar ganga á Vífilsfell úr Jósefsdal kl. 9
Brottför úr Mörkinni 6  og Shell við Vesturlandsveg kl. 8.15.  Ekið áleiðis til Selfoss en skömmu áður en á móts við Litlu kaffisstofuna er beygt til hægri og ekið áleiðis inn Jósefsdal þar sem gönguferðin hefst.

Laugardaginn 27. mars ganga hóparnir á fjöll sem hér segir:

Vestubær gengur á  Vífilsfell úr námu kl. 9
Austurbær gengur á Hrafnabjörg og Arnarfell kl. 9
Þorparar ganga á Arnarfell og Hrafnabjörg kl. 9

Fimmtudaginn 1. apríl er sameiginleg ganga hópanna á Heklu
Brottför kl. 8 úr Mörkinni 6.  Rútukostnaður fyrir þá sem koma með rútu.

Fimmtudaginn 8. apríl kl. 18. 30  gengur Austurbær á Kerhólakamb
Fimmtudaginn 8. apríl kl. 18.30 gengur Vestubær á Stóra Kóngsfell
Fimmtudaginn 8. apríl kl. 18.30 ganga Þorparar á Akrafjall

Fimmtudaginn 15. apríl  kl. 18.30 gengur Austurbær á Stóra- Kóngsfell
Fimmtudaginn 15. apríl kl. 18.30 gengur Vestubær á Akrafjall
Fimmtudaginn15. apríl kl.18.30 ganga Þorparar á Kerhólakamb

Fimmtudaginn 22.apríl kl. 18.30 gengur Austurbær á Akrafjall
Fimmtudaginn 22. apríl kl. 18. 30 gengur Vesturbær á Kerhólakamb
Fimmtudaginn 22. apríl kl. 18.30 ganga Þorparar á Stóra Kóngsfell

Fimmtudaginn 29. apríl kl. 18 gengur Austurbær á  Hengilinn - Skeggja
Fimmtudaginn 29. apríl kl. 18 Vesturbær á Þverfellshorn
Fimmtudaginn 29.apríl kl. 18 ganga Þorparar á Kistufell í Esjunni

Laugardaginn 8. mai er gengið á Hvannadalshnúk,  allur hópurinn, göngumenn koma í Skaftafell  á föstudag og gista í tjöldum í Svínafelli, upphafstími göngu gefinn upp síðar með tilliti til veðurútlits. Gengið er upp í litlum hópum, 8 - 10 manns hver hópur.
Athugið í gönguna þarf öryggisbúnað, ísbrodda, ísexi og öryggisbelti. 
Sérstakur undirbúningsfundur fyrir ferðina.

Fimmtudaginn 13. maí kl. 18 gengur Austurbær  á Þverfellshorn
Fimmtudaginn 13. maí kl. 18 gengur Vestubær á Kistufell í Ejsunni
Fimmtudaginn 13. maí kl. 18 ganga Þorparar á Hengilinn - Skeggja

Miðvikudaginn 19 maí kl. 18 gengur Austurbær á Kistufell í Esjunni
Miðvikudaginn 19. maí kl. 18 gengur Vestubær á Hengilinn - Skeggja
Miðvikudaginn 19. maí kl.18 ganga Þorparar á Þverfellshorn

Sunnudaginn 23. maí er gengið á þrjú fjöll á sunnudegi, Vörðufell, Mosfell og Búrfell í Grímsnesi. Í þessari röð:
Austurbær: Vörðufell, Mosfell og Búrfell;
Vesturbær: Mosfell, Vörðufell og Búrfell
Þorparar: Búrfell, Mosfell og Vörðufell
Að lokinni göngu er kvöldverður í Þrastarlundi, þriggjafjallasteik á tilboði.
Fyrir þá sem vilja er síðan heitipotturinn í sundlauginn í Hveragerði.

Miðvikudaginn 26 maí er morgunganga kl. 06 að morgni og ganga Austurbær og Vesturbær á Stóra Grænafjall
Miðvikudaginn 26. maí ganga Þorparar á Lyklafell í morgungöngu kl. 06

Fimmtudaginn  27. maí er morgunganga kl. 06 að morgni  og ganga Austurbær og Vesturbær er á Lyklafell
Fimmtudaginn 27. mai er morgunganga kl 06 og ganga Þorparar á Stóra Grænafjall

4- 6. júní er helgarferð í Þórsmörk og gengið á Valahnúk, Rjúpnafell, Útigönguhöfða, Réttarfell og Háutinda.  Hóparnir skiptast á fjöllum. Gist í tjöldum. Sameiginlegar kvöldvökur, jógaæfingar, teygjur og sprell. Brenna og fjallagrill.  Næsta ganga er 19. júní.

19 júni er sumarsólstöðuganga á Snæfellsjökul kl. 21 á laugardagskvöldi og staðið tindi Snæfellsjökuls rétt upp úr miðnætti.  Sameiginleg ganga allra hópa.  Ekki er þörf á öryggisbúnaði, broddum, belti eða öxi.  Boðið er upp á rútu fyrir þá sem það vilja og er þá rútukostnaður.

Frá 20. júní - 14 ágúst er sumarleyfi í verkefninu en þátttakendur fá heimaverkefni í sumarfríinu og eins má ganga á fjöll að eigin vali, en öll fjöll í sumarfríinu bætast við fjöllin 52 í verkefninu.

Laugardaginn 14. ágúst hefst verkefnið að nýju að loknu sumarleyfi með  með sameiginlegri gönguferð allra hópa á Skjaldbreið kl. 9.  Síðan halda hóparnir áfram og ganga á fjöll á þessum dögum í þremur hópum á hvert fjall.

Miðvikudagur 18. ágúst
Miðvikudagur25. ágúst

Fimmtudagur 2. sept
Fimmtudagur 9. sept

Laugardagur 11. sept
Laugardagur 18. sept
Laugardagur 25. sept
Laugardagur 2. okt
Laugardagur 9. okt
Laugardagur 23. okt - fyrsti vetrardagur

Sunnudagur 31. okt
Sunnudagur 7. nóv
Sunnudagur 14. nóv
Sunnudagur 21. nóv
Sunnudagur 28. nóv
Sunnudagur 5. des
Sunnudagur 19. des

Föstudagur 31. desember - Gamlársdagur - Lokagangan - Sameiginleg ganga allra hópa

Hér má finna upplýsingar um nokkur af fjöllunum 52 í Eitt fjall á viku.
Bætt verður í listann

  • Skjaldbreiður1
  • Skjaldbreiður2
  • Stóra Kóngsfell og Þríhnúkar
  • Svínaskarð
  • Vífilsfell
  • Þingvellir-Þjóðgarðurinn
  • Þríhnúkar - Bláfjöll
  • Þverfellshorn
  •  

      Markmið

    • Ganga á 52 fjöll á árinu
    • Stunda reglulega útiveru og hreyfingu
    • Taka þátt í skemmtilegum félagsskap
    • Setja sér  önnur markmið um bætt líkamlegt form, þol og þrek, styrkjast, léttast osvfrv.   

    SKRÁNING >>

    Fyrirkomulag

    • Eitt fjall á viku, samtals 52 fjöll á árinu.
    • Fyrstu 6 gönguferðirnar eru á sunnudögum kl. 11, næstu 6 gönguferðirnar eru á laugardagsmorgnum kl. 9, næstu 6 eru á miðvikudögum kl. 18 og næstu 6 eru á fimmtudögum kl. 18.  Á þremur vikum ársins er safnað 10 fjöllum þannig að færi gefist á 10 vikna sumarfríi.  Í sumarfríinu eru heimaverkefni sem eru eitt fjall á viku, að eigin vali en bent verður sérstaklega á 10 fjöll víða um land og sérstaklega er bent á ferðaáætlun deilda FÍ.  
    • Auglýstur tími gönguferðar miðar við upphafsstað gönguleiðar, en ekki frá t.d. Mörkinni 6.  Tll dæmis, lagt er af stað í fyrstu gönguferðina kl. 11 frá bílastæðinu við Kaldársel.  Upphafsstaður gönguferðar og leiðarlýsing að honum er ávallt kynntur fyrir hverja ferð.

      Búnaður 

    • Góðir gönguskór
    • Göngufatnaður / hlífðarfatnaður / vatns- og vindheldur, auka peysa, ull eða fleece 
    • Legghlífar 
    • Bakpoki 
    • Sólgleraugu
    • Göngustafir 
    • (fararstjórar hafa með sér ýmsan öryggisbúnað, gps tæki, talstöðvar, sjúkrakassi, góða skapið ofl.    

    Fjöllin 52 

    • Tímasett dagskrá verkefnis verður kynnt hér á síðunni á næstu dögum, með upplýsingum lengd hverjar göngu, vegalengd og aksturstíma að upphafsstað göngu og leiðarlýsingu að upphafsstað göngu.

    Helgafell Eyjar í Hraunhafi Hrafnabjörg Ármannsfell Gullkista - Miðdalsfjalli 
    Arnarfell Móskarðs-hnúkar Háutindar Dyrafjöll Heiðartoppur 
    Úlfarsfell   Þórmörk - helgarferð Hekla   Skálafell - Hellisheiði
    Búrfell Jórutindur Snæfellsjökull    Miðdegishnúkur við Kleifarvatn
    Mosfell
    Valahnúkur Þverfellshorn   Þorbjörn Festarfjall
    Vörðufell Keilir Stóra Kóngsfell Skarðsmýrar-fjall Tröllakirkja
    Grímarsfell
    Rjúpnafell Akrafjall Kvígindisfell Heiðarhorn
    Ingólfsfjall Helgafell - Mosó Hengill   Hvalfell
    Húsfell Réttarfell Hvannadals-hnúkur Skjaldbreiður Stóri Meitill
    Fjallið eina Vífilsfell Herðubreið Hlöðufell Geitafell
    Skálafell Útigönguhöfði Botnssúlur  Laugarvatns-fjall  

    Þátttökugjald í verkefninu  

    • Kr. 1000 á fjall, alls kr. 52.000 sem ganga þarf frá í upphafi verkefnis  eða fyrir 20. janúar

    • Skipta má upphæðinni niður í raðgreiðslur.  
    • Allir þátttakendur fá möppu með upplýsingum um verkefnið, með tímasettri dagskrá fjallanna, upplýsingum um göngulengd, hæðarhækkun, búnað og ýmsum fróðleik um fjallamennsku.  Mappan er afhent eftir að skráningu lýkur 20. janúar.

    • Í öllum ferðum er farið á einkabílum, nema að annað sé ákveðið. Þátttakendur taka þátt í sameiginum ferðakostnaði 

    • Hægt að fá styrki frá vinnuveitanda/stéttarfélögum til þátttöku í verkefninu.
    • Hjón greiða eitt og hálft gjald.
    • Heimilt er að taka börn með sér í einstaka ferðir eftir atvikum.
    • Hundar og heimilisdýr eru ekki leyfð með í gönguferðirnar

    SKRÁNING >>

       


    PÓSTLISTASKRÁNING

    Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
    Ferðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortSafnaðu fjöllum með FÍ

    Slóðin mín:

    Ferðir » Eitt fjall á viku

    Stjórnborð

    Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

    Information in other languages

    • Information in English
    • Informationen auf Deutsch

    Mynd