Eitt fjall į mįnuši 2012
21.5.2012
Fjall mįnašarins ķ mai eru Kįlfstindar 824m

Fimmta ganga verkefnisins Eitt fjall á mánuði 2012 á vegum Ferðafélags Íslands verður farin laugardaginn 26. mai.
Kálfstindar eru hluti af langri fjallaröð sem teygir sig frá Lyngdalsheiði og til norð-austurs inn á hálendið ofan Laugarvatns. Þetta eru móbergsfjöll. Sum eru ávöl og slétt að ofan meðan önnur skarta hvössum tindum og skörpum hryggjum.
21.5.2012
Gengiš var į Kerhólakamb Esju

Í þokusudda og hávaðaroki laugardaginn 28. apríl hélt stór hópur á Kerhólakamb Esju. Skyggni var 50 m. og hvasst þegar komið var uppá fjallið.
24.4.2012
Gengiš į Kerhólakamb

Fjall mánaðarins í apríl er Kerhólakambur Esju
Fjórða ganga verkefnisins Eitt fjall á mánuði 2012 á vegum Ferðafélags Íslands verður farin laugardaginn 28 apríl.
Fyrirhugaðri göngu á Hátind Esju verður frestað þar til síðar. Aðastæður á þeirri leið eru erfiðar nú þegar snjór er að hverfa úr fjöllum og hrun er á lausum steinum á bröttum kafla gönguleiðarinnar.
9.4.2012
Fariš var į bįša Meitlana ķ hįvaša roki

Þriðja ferð verkefnisins eitt fjall á mánuði var farin 24. mars. Stór hópur lagði Stóra og Litla Meitil að fótum sér þó varla væri stætt í verstu hviðunum
20.3.2012
Fjall mįnašarins ķ mars er Stóri-Meitill og Litli-Meitill
Þriðja ganga verkefnisins Eitt fjall á mánuði 2012 á vegum Ferðafélags Íslands verður farin laugardaginn 24 mars.
Gengið verður fyrst á Stóra-Meitil í Þrengslum sem er 514m. hátt. Fjallið er allbratt á flesta vegu, er móbergsfjall sem náð hefur uppúr jökli þegar það gaus á síðasta jökulskeiði ísaldar, enda má sjá hraun á kolli fjallsins. Fjallið er sérstakt vegna þess að þegar komið er á fjallsbrúnina blasir við stór gígur, all djúpur og víður. Einnig verður farið á Litla-Meitil.
6.3.2012
Utangįtta uppķ Mosfellssveit
Eitt fjall á mánuði í febrúar var Grímannsfell í Mosfellsdal. Fellið er hæsta fjallið í Mosfellsku Ölpunum og teygir sig heila 482m upp í himininn. Þegar gangan hófst um kl: 10.00 á Helgadalsvegi vestan undir fjallinu var skýjað. Taldi söfnuðurinn 138 einstaklinga og nokkra hunda í þokkabót.
18.2.2012
Fjall mįnašarins ķ febrśar er Grķmannsfell.
Önnur ganga verkefnisins Eitt fjall á mánuði 2012 á vegum Ferðafélags Íslands verður farin laugardaginn 25. febrúar.
Gengið verður á Grímannsfell í Mosfellsdal sem er 482 m. hátt fjall sem er staðsett austast í Mosfellsdal.
Grímannsfell er hæsta fjallið í Mosfellssveit, nokkuð víðáttumikið og gott útsýnisfjall.
1.2.2012
Helgafelliš gengiš ķ blautu fęri
Gengið var á Helgafell í skýjuðu veðri. Mikið hafði ringt og færið fremur blautt. Óðum við krapatjarnirnar upp á leggi. Lítill snjór var í fjallinu og engin hálka né klaki á leiðinni. Allt gekk vel og náðum við tindinum eftir þægilega göngu. Uppi var allhvasst og lítil útsýn en fólk lét það ekki hafa af sér kaffipásuna
18.1.2012
Fjall mįnašarins ķ janśar er Helgafell ofan Hafnarfjaršar.
Fyrsta ganga verkefnisins Eitt fjall á mánuði 2012 á vegum Ferðafélags Íslands verður farin laugardaginn 28. janúar.


















