Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Grímannsfell

Fjall mánaðarins í febrúar er Grímannsfell.

grimannsfell-kort-350
Gönguleiðin á Grímannsfell

Önnur ganga verkefnisins Eitt fjall á mánuði 2012 á vegum Ferðafélags Íslands verður  farin laugardaginn 25. febrúar.

 Gengið verður á Grímannsfell í Mosfellsdal sem er 482 m. hátt fjall sem er staðsett austast í Mosfellsdal.

Grímannsfell er hæsta fjallið í Mosfellssveit, nokkuð víðáttumikið og gott útsýnisfjall.

Fjallið er hluti af megineldstöðinni sem kennd er við Stardal. Hún er 1 – 2 milljón ára gömu og er þar sem nú er austurendi Esjunnar. Skriðjöklar ísalda hafa síðan rofið eldstöðina og myndað Mosfellsdalinn.

Gönguleið okkar liggur frá Helgadalsvegi þar sem heitir Vindhóll. (við hlið gróðrarstöðvarinnar Gróanda.) Leiðin liggur upp vesturhlíðar fellsins uns komið er upp á Flatafell. Þaðan liggur þægileg gönguleið austur eftir fjallinu uns komið er á hæsta hnúkinn sem nefndur er Stórhóll. Þaðan er mjög gott útsýni til austurs og norðurs og ef gott skyggni er sést inn til jökla.

Ef snjór verður á fjallinu er gott að hafa hálkubrodda meðferðis.

Þar sem gönguhópurinn er stór verður honum skipt strax í upphafi í hraðan og hægari gönguhóp. Þannig ætti gönguhraði að vera við allra hæfi.

Mikilvægt er að vera búin og í samræmi við veður og aðstæður.

Upphafsstaður göngu er vestan undir Grímannsfelli frá Helgadalsvegi við Vindhól.

Ekinn er Þingvallavegur upp Mosfellsdal og beygt til hægri áður en komið er að Gljúfrasteini (safn Halldórs Laxness). Ekið 1,7. km að Vindhól.

Þar hefst gangan kl. 10.00. en þeir sem vilja geta hist í Mörkinni 6 við húsakynni Ferðafélagsins og sameinast í bíla. Brottför úr Mörkinni 6 er kl. 09.15.
Hér er kort sem sýnir staðsetningu FÍ.

Um er að ræða 420 metra hækkun og lengd göngu er 8 km. fram og til baka.

Gera má gera ráð fyrir að hópurinn verði aftur við bíla  um kl. 14.00 - 15.00

Fararstjórar eru: 

Örvar Aðalsteinsson                8993109
Ævar Aðalsteinsson                6965531
Ólafía Aðalsteinsdóttir           8622863
Einar Ragnar Sigurðsson         8998803
Pétur Ásbjörnsson                   8987960
Sigrún Hallgrímsdóttir            6617746

 



Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Eitt fjall » Eitt fjall á mánuði 2012 » Grímannsfell

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages


Mynd

Framhjagangan mikla Heydalsa

Veldu ferðafélag