Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Eitt fjall á mánuði

Eitt fjall á mánuði - RSS

ghjhgjk jh gkj gkj hg khgkkk

Fjall mánaðarins í júlí er Tröllakirkja á Holtavörðuheiði.

Sjöunda ganga verkefnisins Eitt fjall á mánuði á vegum Ferðafélags Íslands verður farin laugardaginn 23. júlí.

Gengið verður á Tröllakirkju sem er 1001 m. hátt fjall vestan við Holtavörðuheiði. Tröllakirkju hafa flestir horft á þegar þjóðbrautin er ekin um Holtavörðuheiði en færri hafa gengið upp á fjallið þó ekki sé um langan veg að fara. Af Tröllakirkju sér víða um héruð í góðu skyggni enda eru sýslumörk þriggja sýslna á tindinum, Mýrasýsla, Strandasýsla og Dalasýsla mætast þar. Fjallið er byggt upp af basaltlögum 6-7 milljón ára gömlum og er mótað af rofi jökla. Í Tröllakirkju bjuggu tröll þursar við landnám. Þegar landsmenn tóku kristni og hófu að byggja kirkjur tóku þau að ókyrrast og flúðu flest norður á strandir.  Tröllkona ein var eftir í fjallinu og reyndi að eiða mönnum og kirkju með því að grýta bjargi einu ógurlegu af fjallinu og niður að Stað í Hrútafirði þegar fyrst átti að messa þar. Ekki dró hún lengra en að hestaréttinni og drap þar nokkur hross. Hugsanlega eru þessar sögusagnir ástæða þess að flestir hraða sér yfir heiðina þegar  þeir eiga þar leið um og leiða ekki hugann að því að ganga á fjallið. En nú verður breyting á. Við herðum upp hugann og mætum tröllkellu á hennar heimavelli. Gangan á fjallið er auðveld um gróið land en það getur verið nokkuð votlent á köflum. Búast má við snjósköflum efst en þeir verða ekki til trafala. Gangan hefst frá þjóðvegi 1 þar sem halla fer norður af háheiðinni, á milli Holtavörðuvatns og Grunnavatns. Við göngum vestur frá þjóðveginum yfir lægðina og smá hækkum okkur upp brekkurnar upp í skarð sem er sunnan við hæsta hnúkinn. Þaðan er haldið norður fjallið stuttan spöl á tindinn.

Upphafsstaður göngu er við þjóðveg 1 þar sem halla fer norður af hábungu Holtavörðuheiðar. Bílastæði þarf að reyna að finna þarna en örugglega er hægt að leggja bílum þar sem sæluhúsið stóð fyrrum á háheiðinni.

Ekinn er hringvegur 1 í gegnum Borgarnes og áfram upp Borgarfjörð áleiðis norður í land upp á Holtavörðuheiði. 

Þar hefst gangan kl. 10.30. en þeir sem vilja geta hist í Mörkinni 6 við húsakynni Ferðafélagsins og sameinast í bíla. Brottför úr Mörkinni 6 er kl. 08.00.
Hér er kort sem sýnir staðsetningu FÍ.
Um er að ræða 700 metra hækkun og lengd göngu er um 12 km. fram og til baka.

Gera má gera ráð fyrir að hópurinn verði við bíla aftur um kl. 16 - 17.00.

1.1.1900

Strútur 937 m.

Stutt frásögn:

3. gangan á Strút.

Allt er þegar þrennt er, á okkar ferðum hér

af illviðri og þoku vel við njótum.

Því á milli ferða þornar varla á mér

og þessu öllu saman nú vér blótum.

Þátttakendur voru mættir að bænum Kalmannstungu fyrir ofan Húsafell kl: 11.00

Þaðan var ákveðið að hefja gönguna á Strút. 62 göngumenn lögðu af stað í lágskýuðu veðri og hægum vindi. Ekkert sá til fjallsins en eftir leiðbeiningum Ólafs bónda Kristóferssonar var auðvelt að finna bestu leiðina,  upp með bæjargilinu og gamla veginn sem áður var farinn uppá Arnarvatnsheiði.  Með GPS - punktinn á tind fjallsins var síðan fljótlega sveigt til austurs og stefnan tekin á vestur-öxl fjallsins.  Ekkert sást til fjallsins og fljótlega komum við upp í svarta þoku en áfram var lítill vindur og allir hressir í hópnum. Eftir stutta kaffipásu í um 500 m hæð var haldið áfram. Enn þéttist þokan og nokkuð hvessti þegar komið var ofar í fjallið. Í þessu litla  skyggni var lögð áhersla á að halda hópinn og var því farið rólega og stoppað nokkrum sinnum á leiðinni.  Náðum við tindinum eftir 3 klst. göngu. Skyggni var ekkert og nokkur vindur svo ekki mikið annað að gera en að halda fljótlega aftur niður. Göngufélagar voru nú allir sammála því að í næstu ferð hlytu veðurguðirnir að verða okkur hliðhollir því allt er þegar þrennt er og þetta var þriðja ferðin í leiðinda veðri.  Af fjallin mun samt vera allgóð útsýn svo einum göngumanna varð að orði:

Upp á Strútinn áfram brýst

með ógnarþungann poka.

Útsýn mikil er þar víst

ef ekki væri þoka.

Kom hópurinn aftur að Kalmannstungu um kl: 16.00 eftir tæpa 5 klst. ferð. Allir voru sammála því að ferðin hefði verið góð þó ekkert hefði verið skyggni. Hittumst næst 30 apríl og þá verður aftur farið í Borgarfjörðinn og gengið á Baulu.

Þriðja ganga verkefnisins Eitt fjall á mánuði á vegum Ferðafélags Íslands verður farin laugardaginn 26. mars.

 Gengið verður á Strút sem er 937 m. hátt fjall hjá Kalmanstungu í Borgarfirði. Strútur er tignarlegt fjall ofan Reykholtsdals. Norðan og austan við Strút er Hallmundarhraun og Eiríksjökull. Fjallið er myndað úr móbergi á jökulskeiði síðla á ísöld.
Upphafsstaður göngu er við bæinn Kalmannstungu fyrir ofan Húsafell í Reykjoltsdal. Þaðan verður gengið upp suðvesturhluta fjallsins svokallaða Neðriöxl í jafnri göngu upp á tindinn. Af toppi fjallsins er víðáttumikið útsýni. Sést þar yfir Hallmundarhraun og til Eiríksjökuls. Til suðurs er Geitlandsjökull, Prestahnúkur, Þórisjökull og Kaldidalur.Einnig er víðáttumikið útsýni yfir Borgarfjörð allt til Snæfellsness.
Ekið sem leið liggur í Húsafell og best er að fara hjá Hafnarfjalli um Andakíl og upp í Reykholtsdal. Þegar komið er í Húsafell er haldið áfram yfir Hvítá og að bænum Kalmanstungu og þar hefst gangan kl. 11.00. en þeir sem vilja geta hist í Mörkinni 6 við húsakynni Ferðafélagsins og sameinast í bíla. Brottför úr Mörkinni 6 er kl. 9.00. 
Hér er kort sem sýnir staðsetningu FÍ.
Um er að ræða 600 metra hækkun og lengd göngu er um 12 – 14  km. og má gera ráð fyrir að hópurinn verði við bíla aftur um kl. 15.00. 

Fararstjórar verða: Örvar Aðalsteinsson, Ævar Aðalsteinsson, Ólafía Aðalsteinsdóttir, Linda Björnsdóttir, og Jóhanna Haraldsdóttir.

Kort af gönguleiðinni á Strút í Borgarfirði

 Strutur-kort

GSM símar fararstjóra:

Eyrarfjall í Kjós var fjall mánaðarinns í febrúar.

Á Eyrarfjallið æddum svo

allveg var það gefið.

Tindaskráin telur tvo

við tókum þetta í nefið.

Ekki er hægt að segja annað en að ferðin hafi gengið vel þrátt fyrir dimm vestan él sem gengu reglulega yfir. Hópurinn var stór, 110 manns sem fór án nokkurra vandræða alla leið og vorum við ekki nema um 1 og hálfan tíma upp sem er mjög gott í svona stórum hópi. Veðrið bauð ekki upp á mikil útsýnisstopp og aðeins var staldrað við nokkrum sinnum til að þétta hópinn. Fengum okkur nesti í bland við skafrenning á tindinum. Greinilegt er að janúargangan á Blákoll í vonsku veðri gerði það að verkum að allir voru mjög vel búinir. Þó kom í ljós að þeir sem voru með vindlúffur og góðar húfur leið greinilega betur í skafrenningnum.

Önnur ganga verkefnisins Eitt fjall á mánuði á vegum Ferðafélags Íslands verður farin laugardaginn 26. febrúar.

Gengið verður á Eyrarfjall sem er 476 m. hátt fjall í Kjósinni. Eyrarfjall er staðsett norðan við Esjuna og austan við Hvafjörð. Fjallið er samsett úr hraun og móbergslögum eins og Esjan og er myndað á sama hátt. Jöklar ísaldanna hafa mótað dali Kjósarinnar og grafið dalinn Miðdal á milli Eyrarfjalls og Esju. Stendur það því stakt og er hægt að aka í kringum það.
Upphafsstaður göngu er við afleggjarann að bænum Kiðafelli sem stendur suðvestan undir fjallinu. Þar er hægt að leggja bílum. Þaðan verður gengið upp vesturhluta fjallsins upp í dálítið dalverpi áður en farið er upp suðurhlíðina á meginfjallið.
Ekin er leiðin inn í Hvalfjörð og tekin fljótlega hægri beygja inn á veg sem merktur er Miðdalur. Fljótlega er komið að afleggjara að Kiðafelli og þar hefst gangan kl. 10.50. en þeir sem vilja geta hist í Mörkinni 6 við húsakynni Ferðafélagsins og sameinast í bíla. Brottför úr Mörkinni 6 er kl. 10.00.
Hér er kort sem sýnir staðsetningu FÍ.
Um er að ræða 390 metra hækkun og lengd göngu er um 10 km. og má gera ráð fyrir að hópurinn verði við bíla aftur um kl. 16.00.
Búið ykkur vel. Þarna getur verið allra veðra von og oft er vindstrengur niður Kjósina norðan við Esju.

Fararstjórar verða: Örvar Aðalsteinsson, Ólafía Aðalsteinsdóttir, Linda Björnsdóttir, Linda Udengard, Einar Ragnar Sigurðsson og Jóhanna Haraldsdóttir.

Hér má sjá kort af gönguleiðinni á Eyrarfjall í Kjós.

 Eyrarfjall í Kjós

GSM símar fararstjóra:

Örvar Aðalsteinsson 899-3109
Ævar Aðalsteinsson 696-5531
Ólafía Aðalsteinsdóttir 862-2863
Einar Ragnar Sigurðsson 899-8803
Jóhanna Haraldsdóttir 864-4719
Linda Björnsdóttir 824-5293
Linda Udengard 898-3080

Á Blákoll fyrst við bröltum á
það bara reyndist gaman.
Þó blési á móti og blaut varð tá
þá blessaðist allt saman.

Fyrsta gangan í 12 fjalla verkefni FÍ var um sl. helgi.  Þá gengu 92 þátttakendur á Blákoll.  Fararstjórar voru Ævar og Örvar Aðalsteinssynir auk fleiri fararstjóra en þeir bræður ( fjallabræður ) eru aðalfararstjórar verkefnisins.  Að lokinni göngu var til þessi ágæta vísa.

1.1.1900

Fyrsta gangan í 12 fjalla verkefni FÍ var um sl. helgi.  Þá gengu 92 þátttakendur á Blákoll.  Fararstjórar voru Ævar og Örvar Aðalsteinssynir auk fleiri fararstjóra en þeir bræður ( fjallabræður ) eru aðalfararstjórar verkefnisins.  Að lokinni göngu var til þessi ágæta vísa sjá hér neðar.

bla1
Fólk kom á eigin bílum á upphafstað göngunnar ofan Draugahlíðar

bla2
Örvar talar til 92 ferðbúinna göngumanna með aðstoð gjallarhorns

bla3
Komin yfir hraunið í rigningu og hvassri suð-austan átt.

bla4
Hópurinn komin vel áleiðis og stutt hvíld í vari við klett.

bla5
Fyrstu menn komnir á hæsta kollinn í miklu roki og slyddu.

Um ferðina:

  • Fjall mánaðarins í janúar 2011
  • Blákollur 532 m.
  • 5 km.
  • Gengið frá suðurlandsvegi fyrir ofan Draugahlíðar.
  • 3 tímar.
  • Erfið ganga vegna veðuraðstæðna. Suð-austan rok og rigning sem breyttist í slyddu. Mjög sterkar hviður.
  • Ku vera góður útsýnisstaður þó ekki sé fellið hátt. Fín reynsla fyrir komandi göngur á árinu.

Á Blákoll fyrst við bröltum á
það bara reyndist gaman.
Þó blési á móti og blaut varð tá
þá blessaðist allt saman.

92 þátttakendur með fararstjórum.

Fyrsta ganga verkefnisins Eitt fjall á mánuði á vegum Ferðafélags Íslands verður farin laugardaginn 29. janúar.
Gengið verður á Blákoll sem er 532 m. hátt móbergsfell rétt austan við Litlu kaffistofuna  í Svínahrauni sunnan þjóðvegar.  Við austurmynni Jósepsdals eru tveir áberandi hnúkar sem nefnast Sauðdalahnúkar en Blákollur er rétt austan við þá og nær veginum.
Upphafsstaður göngu er við áminningarskilti Umferðarstofu þar sem bílhræi er stillt upp á stólpa rétt fyrir ofan brekkuna austan við Litlu Kaffistofuna. Þar er hægt að aka út af veginum ofan í malarnám.
Þar hefst gangan kl. 10.30. en þeir sem vilja geta hist í Mörkinni 6 við húsakynni Ferðafélagsins og sameinast í bíla. Brottför úr Mörkinni 6 er kl. 10.00. Hér er kort sem sýnir staðsetningu FÍ.
Um er að ræða 300 metra hækkun og lengd göngu er um 6 km. og má gera ráð fyrir að hópurinn verði við bíla aftur um kl. 13.00. Búið ykkur vel. Reikna má með einhverri úrkomu og vindi af suðri.
Fararstjórar verða: Örvar Aðalsteinsson, Ævar Aðalsteinsson, Ólafía Aðalsteinsdóttir, Einar Ragnar Sigurðsson og Jóhanna Haraldsdóttir.
Hér má sjá kort af gönguleiðinni á Blákoll.

Blakollur-kort

GSM símar fararstjóra:

Örvar Aðalsteinsson 899-3109
Ævar Aðalsteinsson 696-5531
Ólafía Aðalsteinsdóttir 862-2863
Einar Ragnar Sigurðsson 899-8803
Jóhanna Haraldsdóttir 864-4719

1.1.1900

Fyrsta ganga verkefnisins Eitt fjall á mánuði á vegum Ferðafélags Íslands verður farin laugardaginn 29. janúar.
Gengið verður á Blákoll sem er 532 m. hátt móbergsfell rétt austan við Litlu kaffistofuna  í Svínahrauni sunnan þjóðvegar.  Við austurmynni Jósepsdals eru tveir áberandi hnúkar sem nefnast Sauðdalahnúkar en Blákollur er rétt austan við þá og nær veginum.
Upphafsstaður göngu er við áminningarskilti Umferðarstofu þar sem bílhræi er stillt upp á stólpa rétt fyrir ofan brekkuna austan við Litlu Kaffistofuna. Þar er hægt að aka út af veginum ofan í malarnám.
Þar hefst gangan kl. 10.30. en þeir sem vilja geta hist í Mörkinni 6 við húsakynni Ferðafélagsins og sameinast í bíla. Brottför úr Mörkinni 6 er kl. 10.00. Hér er kort sem sýnir staðsetningu FÍ.
Um er að ræða 300 metra hækkun og lengd göngu er um 6 km. og má gera ráð fyrir að hópurinn verði við bíla aftur um kl. 13.00. Búið ykkur vel. Reikna má með einhverri úrkomu og vindi af suðri.
Fararstjórar verða: Örvar Aðalsteinsson, Ævar Aðalsteinsson, Ólafía Aðalsteinsdóttir, Einar Ragnar Sigurðsson og Jóhanna Haraldsdóttir.
Hér má sjá kort af gönguleiðinni á Blákoll.

Blakollur-kort

GSM símar fararstjóra:

Örvar Aðalsteinsson 899-3109
Ævar Aðalsteinsson 696-5531
Ólafía Aðalsteinsdóttir 862-2863
Einar Ragnar Sigurðsson 899-8803
Jóhanna Haraldsdóttir 864-4719

Skiptimarkaður

Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Eitt fjall » Eitt fjall á mánuði » Upplýsingar og frásagnir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

Mynd

I nagrenni Landmannalauga

Veldu ferðafélag