Beint į leišarkerfi vefsins
Aftur į forsķšu vefs

Eyjabakkar - Geldingafell - Lónsöręfi

Feršir - RSS
Nśmer: S-25
Dagsetning: 28.7.2010
Brottfararstašur: Egilsstašir
Višburšur: Eyjabakkar - Geldingafell - Lónsöręfi
Erfišleikastig: Nokkuš langar dagleišir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist ķ hśsum en getur žurft aš bera tjöld • gengiš ķ fjalllendi • getur žurft aš vaša erfišar įr • žįtttakendur žurfa aš vera ķ góšri žjįlfunNokkuš langar dagleišir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist ķ hśsum en getur žurft aš bera tjöld • gengiš ķ fjalllendi • getur žurft aš vaša erfišar įr • žįtttakendur žurfa aš vera ķ góšri žjįlfunNokkuš langar dagleišir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist ķ hśsum en getur žurft aš bera tjöld • gengiš ķ fjalllendi • getur žurft aš vaša erfišar įr • žįtttakendur žurfa aš vera ķ góšri žjįlfun
Lżsing:

S-25

AUSTURLAND                                                                                      

Eyjabakkar - Geldingafell - Lónsöræfi 

28. júlí - 1. ágúst, 5 dagar

Fararstjóri: Hjalti Björnsson

Ganga um eitt afskekktasta óbyggðasvæði landsins, meðfram jökultungum Vatnajökuls, þar sem andstæðurnar í landslaginu verða hvað stórfenglegastar. Ferðin hefst á Egilsstöðum og endar á Hornafirði.

1. dagur, miðvikudagur: Ekið frá Egilsstöðum upp á Eyjabakka þar sem gangan hefst. Gengið um hina raunverulegu Eyjabakka austan Jökulsár í Fljótsdal með Snæfellið á hægri hönd vestan við Jökulsána. Eyjabakkafoss skoðaður áður en stefnan er tekin í átt að Eyjabakkajökli sem blasir við í suðri. Skömmu norðan við Bergkvíslakofa sveigjum við til austurs og stefnum á Geldingafellið. Gist í skála norðan Geldingafells. 17 km.

2. dagur: fimmtudagur: Gengið meðfram Geldingafelli um jökulurðir og ógrónar öldur og haldið fram á brúnir Vesturdals þar sem Jökulsá í Lóni á upptök sín. Farið niður að ánni og skoðaður hrikalegur foss. Síðan gengið upp með Vesturdalsánni og meðfram henni að Kollumúlavatni. Gist í skálanum Egilsseli við Kollumúlavatn. 20 km.

3. dagur: föstudagur: Deginum varið í nágrenni Egilssels. Gengið niður í Víðidal þar sem búið var fram á fyrstu ár 20. aldar. Upplagt að koma við á Kollumúlakollinum á heimleiðinni eða jafnvel baða sig í heiðarvatninu um kvöldið. Gist í skálanum Egilsseli við Kollumúlavatn. 6-10 km.

4. dagur: laugardagur: Heiðarkyrrðin yfirgefin og haldið yfir að Tröllakrókahnaus og um Tröllakróka niður í Leiðartungur. Þar ber landslagið nafn með rentu; Tröllakrókar, Stórusteinar og fleira sem undirstrikar stórbrotið landslagið og andstæðurnar. Litadýrðin sem við blasir af brúnunum er óviðjafnanleg og á sér varla hliðstæður. Gist í Múlaskála í Nesi. Stutt dagleið, 9 km.

5. dagur: sunnudagur: Um Illakamb niður Kambagil og fram alla Kamba suður í Eskifell og njótum hrikalegs landslagsins í Jökulsárgljúfrunum. Við Eskifell endar ferðin og bíll sækir okkur og ekur okkur á Hornafjörð. 14 km.

Verð: 43.000 / 48.000

Innifalið: Rúta, gisting og fararstjórn.

Žessi gönguleið býr yfir miklum andstæðum. Fyrst er gengið um flæðilendur Eyjabakka og síðar eftir eyðilegum urðum og melum háheiðanna áður en fer að halla niður að Egilsseli. Á þeirri leið er farið um brúnir á nafnlausum fossi í útfalli úr svonefndri Vatnadæld fram í gljúfradal Jökulsár í Lóni. Þessi nafnlausi foss mun vera í flokki hæstu fossa landsins líklega í kringum 100 metra á hæð.
Heimsókn að hinu afskekkta heiðarbýli í Víðidal gleymist engum. Þar gætu steinarnir sagt mikla harmsögu gætu þeir talað en skammvinn búsetusaga dalsins var enginn dans á rósum.
Tröllakrókarnir í brúnum Kollumúlans eru ótrúleg náttúrusmíð og síðan er gengið niður Leiðartungur ofan í gljúfur Jökulsár í Lóni sem hefur grafið sig gegnum forna megineldstöð. Svæðið meðfram henni innan Illakambs og Kjarrdalsheiðar, almennt kallað Lónsöræfi er eitt það litríkasta og hrikalegasta á Íslandi og á sér enga hliðstæðu.Hrikaleg gilin sem skera landið í endalausu litrófi líparítsins eru skreytt með gnæfandi berggöngum úr blágrýti og vöxtulegt kjarr og ilmandi gróður hið neðra gera andstæður landslagsins enn hrikalegri og skarpari en ella.


 

til baka

Ašalstyrktarašili FĶ

Stušningsašilar FĶ

Forsķša »

Feršir » Feršir FĶ

Stjórnborš

Forsķša vefsins Stękka letur Minnka letur Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Framhjagangan mikla Heydalsa

Veldu feršafélag