Óeiginlegur Laugavegur
Dagsetning: 28.7.2010
Brottfararstaður: Mörkin 6
Viðburður: Óeiginlegur Laugavegur
Erfiðleikastig:



Lýsing:
S-27
HÁLENDIÐ
Óeiginlegur Laugavegur
28. júlí - 2. ágúst, 6 dagar
Fararstjórar: Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir
1. dagur, miðvikudagur: Ekið úr Reykjavík í Landmannalaugar kl 16:00 og komið í Laugar undir kvöld. Gist í skála og farið í heita lækinn.
2. dagur: Búist til ferðar og farangur settur á trússbíl. Gengið úr Laugum um Reykjakoll, Skalla og Uppgönguhrygg í Hattver í Jökulgili. Þaðan upp að Háuhverum um bratta hryggi innan við Jónsfoss. Eftir að stórkostlegt háhitasvæði Háuhvera hefur verið skoðað er haldið að tvílitum fossi og þaðan þræddir hryggir upp í skarð í Reykjafjöllum og göngunni lýkur í Hrafntinnuskeri. Lengd göngu 16-17 km og 400-500 m hækkun.
3. dagur: Gengið úr Hrafntinnuskeri gegnum skarð í Reykjafjöllum og niður að upptökum Kaldaklofs og þaðan suður fyrir austan Háskerðing og magnaðar ölkeldur skoðaðar og ferðalangar drekka af þeim sér til heilsubótar. Síðan er haldið niður brattar leiðir ofan í Einstigisgil og eftir sandsléttum Kaldaklofs hins syðra og endað í Hvanngili.
Lengd göngu 17-18 km en lítil hækkun.
4. dagur: Haldið úr Hvanngili meðfram Kaldaklofskvísl norður fyrir Stórusúlu og kvíslar vaðnar undir Bratthálsi. Þaðan er haldið meðfram Súluhryggjum og gegnum skarð í þeim að brú á Innri-Emstruá. Síðan er gengið um sanda og ofan í Hattafellsgil og ummerki hamfarahlaups skoðuð. Þaðan er haldið meðfram Markarfljótsgljúfrunum miklu og þau skoðuð frá nýju sjónarhorni. Gist í Emstrum. Lengd göngu um 18 km.
5. dagur: Gengið úr Emstrum yfir brúna á Fremri-Emstruá. Þar er beygt af hefðbundinni leið og haldið upp á hálsinn rétt við Entujökul. Þaðan er haldið um Fauskatorfur og Ljósártungur yfir að Þröngá gegnum völundarhús gilja. Einstakar og fáfarnar slóðir um vindsorfið og sérstakt land. Vaða þarf Þröngá í kröppu gili en þaðan er haldið eftir gilbotni Rjúpnafellsgils og komið á stikaða slóð að nýju við rætur Rjúpnafells. Sé veður bjart gefst kostur á göngu á fjallið. Annars heldur hópurinn áfram eftir merktri slóð yfir á Stangarháls og niður á aura Krossár eftir ævintýralegum skógarstíg. Göngu lýkur í Langadal þar sem göngumenn fagna saman um kvöldið. Lengd göngu 20 km.
6. dagur: Ekið með rútu til Reykjavíkur.
Verð: 51.000 / 56.000
Innifalið: Akstur til og frá Rvk, gisting í skálum, leiðsögn og flutningur á farangri og vistum.
Í leit að ævintýrum
Markmið þessarar ferðar er að kynna fyrir ferðalöngum áhugaverðar og stórkostlegar slóðir og staði sem leynast í seilingarfjarlægð við Laugaveginn, fjölförnustu gönguleið landsins. Ferð þessi var farin í fyrsta sinn sumarið 2009 og lifir í munnlegri geymd meðal þeirra sem tóku þátt.
Páll Ásgeir Ásgeirsson fararstjóri sagði við heimasíðuna að það hefði verið afar sérstæð upplifun að ganga daglangt um slóðir þar sem hvergi sást fótspor eftir mann og koma að kvöldi inn í þröngt setna fjallaskála þar sem flest tungumál heimsins runnu saman í síbylju.
Af mörgum fágætum náttúruundrum sem ber fyrir augu á leiðinni mætti helst nefna Hattverið fagra í Jökulgili þar sem svartur hatturinn gnæfir yfir gullnum líparítskriðum og grösugum hvömmum þar sem heitar uppsprettur leynast. Sjóðandi tjarnir og öskrandi gufuhverir Háuhvera gleymast engum sem þar koma og flæðandi ölkeldurnar í giljunum austan við Háskerðing eru á jaðri þess raunverulega.
Á seinni hluta ferðarinnar er mönnum minnisstætt hið tignarlega Hattafellsgil þar sem ummerki hamfarahlaupa eru sérlega áberandi. Aðkoman að Markarfljótsgljúfrum er með öðrum hætti en þegar hinn hefðbundni Laugavegur er genginn og leiðin gegnum völundarhús giljanna í Ljósártungum og Þröngárkrókum uns komið var að Rjúpnafelli reyndist eins og klippt út úr kvikmyndinni Hringadróttinssaga.
Þetta er erfiðari leið en hinn hefðbundni Laugavegur. Fátt er um troðna göngustíga og í Jökulgili er farið um bratta kamba og tæpar snasir sem getur reynt á lofthræðslu þátttakenda. En fátt er skemmtilegra en að fara um slóðir þar sem ferðalangur hefur sterklega á tilfinningunni að hann sé fyrstur allra á staðinn.
Síðasti áfanginn frá Rjúpnafelli í Langadal liggur niður Stangarháls eftir snarbröttum skógargötum þar sem ilmandi birkið faðmar ferðalang að sér. Á leið til siðmenningar á ný síðastliðið sumar gerði hópurinn stuttan stans í Stakkholtsgjá og þar sást glögglega að leiðangurinn hafði vakið villimanninn í brjóstum þátttakenda því tveir þeirra stungu sér til sunds í hylinn undir fossinum í gjánni og slíkt er sjaldséð.
til baka


















