Jóga á Ströndum - Reykjarfjörður
Dagsetning: 5.8.2010
Brottfararstaður: Norðurfjörður
Viðburður: Jóga á Ströndum - Reykjarfjörður
Erfiðleikastig:


Lýsing:
S-31
HORNSTRANDIR
Jóga á Ströndum - Reykjarfjörður
5.-9. ágúst, 5 dagar
Fararstjóri: Auður Kjartansdóttir. Jógakennari: Auður Bjarnadóttir
Hámark: 22 manns í hús, en auk þess er gott tjaldstæði í boði með góðri aðstöðu.
Sameiginlegur matur er ekki innifalinn í fargjaldi. Farþegar koma til Norðurfjarðar miðvikudaginn 4. ágúst og gista á Valgeirsstöðum.
1. dagur, fimmtudagur: Siglt frá Norðurfirði þann 5. ágúst til Reykjarfjarðar.
2.-4. dagur: Dvalið í Reykjarfirði við göngur, jógaæfingar og slökun, glens og gaman.
5. dagur: Siglt mánudaginn 9. ágúst til Norðurfjarðar og heimferð.
Verð: 44.000 / 49.000
Innifalið: Gisting, sigling, jóga og fararstjórn.
Reykjarfjörður heillar ferðamenn með margvíslegum hætti. Einn þáttur í töfrum staðarins sú litríka saga sem lifir þar í tóftum, húsum og hverju örnefni og er varðveitt af greinargóðum heimamönnum sem enn sitja staðinn af reisn og höfðingsskap.
Í Reykjarfirði er mikill jarðhiti og sundlaugin góða einn helsti sælureitur ferðalanga á þessum slóðum. Þar er gott að morra í snarpheitu vatni og láta líða úr sér eftir góðan göngudag og verður varla til jafnað annars staðar.
Helstu áfangastaðir göngumanna sem dvelja í Reykjarfirði eru nokkrir. Hvítsandar á Þaralátursnesi þar sem sólin sést allan sólarhringinn yfir sumarið er sérstakur staður en hægt er að halda lengra og heimsækja Könnu undir Furufjarðarnúp í snarpri dagsferð. Geirólfsgnúpur rís sunnan fjarðar og af kolli hans er einna best útsýn um norðanverða Vestfirði. Sunnan við núpinn er Skjaldabjarnarvík þar sem rekaviðarbeðjur eru stærri en víðast annars staðar og þar er legstaður galdramannsins Hallvarðs Hallssonar sem allir ferðamenn vilja heita á til góðs veður og leiðis.
Fyrir fjarðarbotni rís Drangajökull skínandi hvítur og storkar göngugörpum. Klettaborgir rísa úr jöklinum, Hljóðabunga, Reyðarbunga og Hrolleifsborg en sú síðastnefnda er vinsæll áfangastaður göngufúsra. Á tind Hrolleifsborgar eru 28 kílómetrar fram og til baka af hlaðinu í Reykjarfirði.
Svo getur líka verið gott að ganga með sjónum á kyrrum degi, setjast á rekadrumb eða leggjast í móinn og hlusta á jarm sjófogla og finna hvernig ró færist yfir sálina því hér stendur tíminn kyrr.
til baka
Leit
Mynd


















