Laugavegurinn, kvennaferš - Feršir FĶ
Nśmer: S-34Dagsetning: 10.8.2010
Brottfararstašur: Mörkin 6 kl. 9
Višburšur: Laugavegurinn, kvennaferš
Erfišleikastig:



Lżsing:
S-34
HÁLENDIÐ
Laugavegurinn, kvennaferð
10.-14. ágúst , 5 dagar
Fararstjóri: Elín S. Óladóttir
Hámarksfjöldi: 20
Ferð fyrir allar konur sem hafa gaman af að ganga og vilja upplifa Laugaveginn í hópi glaðra
kvenna, borða góðan mat og njóta stórbrotinnar náttúru á vinsælustu gönguleið landsins.
Gerum vel við okkur í mat á kvöldin að göngu lokinni, hreinlega dekrum við bragðlaukana. Farangur og matur flutt á milli skála.
1. dagur: þriðjudagur: Brottför frá Mörkinni 6 kl. 9. Komið í Landmannalaugar um kl. 13. Eftir hádegissnarl, sem þátttakendur koma með að heiman, hefst gangan í Hrafntinnusker.
2. dagur: Gengið yfir Kaldaklofsfjöll í skálann við Álftavatn. Ef veður leyfir er gengið á Háskerðing en þaðan er stórkostlegt útsýni yfir Torfajökulsvæðið og víðar. Vaðskór.
3. dagur: Á leiðinni í skálann í Emstrum þarf að vaða nokkrar ár, tvær eru brúaðar, og ganga um svartan Mælifellssand. Vaðskór.
4. dagur: Á leiðinni í Þórsmörk er gengið um fjölbreytt landslag, gljúfur, mólendi, sanda og endað í skóglendi. Vaða þarf yfir eina á en tvær eru brúaðar. Að göngu lokinni er sest að grillmáltíð sem er innifalin. Vaðskór.
5. dagur: Morgunganga eða slappað af áður en haldið er af stað til Reykjavíkur kl. 14.
Verð: 50.000 / 55.000
Innifalið: Gisting, rúta, trúss, fararstjórn, sturtur og grillmáltíð í Þórsmörk.
Ekki innifalið: Sameiginlegur matur á meðan göngu stendur.
Laugavegurinn er vinsælasta gönguleið landsins og sú leið sem laðar til sín flesta erlenda ferðamenn sem á annað borð koma til Íslands til þess að ferðast gangandi.
Įstæðan fyrir vinsældum Laugavegarins er geysilega fjölbreytt landslag á leiðinni. Fyrst liggur leiðin gegnum litadýrð líparítsins í Landmannalaugum og fjöllum Torfajökul gegnum háhitasvæði og öskrandi gufuhveri við Stórahver uns komið er í Hrafntinnusker með sínum sérstæðu hveragiljum, íshellum og glampandi hrafntinnumelum.
Síðan suður úr Kaldaklofsfjöllum yfir á móbergssvæðið þar sem hvassbrýnd fjöll rísa yfir víðáttumiklum söndum og jökulfljót belja í gljúfrum. Síðasta daginn er svo gengið um gróna ása og kjarrskóga Þórsmerkur þar sem birkið ilmar og teygir sprota sína saman yfir höfðum göngumanna.
Dagleiðir á Laugaveginum eru ekki mjög erfiðar, alls er leiðin um 56 km og gengið er á fjórum dögum svo lengstu dagleiðirnar eru 16-17 km.
Į leiðinni er gist í skálum Ferðafélags Íslands í fjölþjóðlegu samfélagi fjallamanna úr öllum heimshornum og myndast oft mjög skemmtileg stemmning á kvöldvökum þegar þjóðirnar staðreyna að hjörtum mannanna svipar saman í Súdan og Grímsnesinu eins og skáldið sagði.
Laugavegurinn var fyrst farinn sem fjögurra daga skipulögð gönguferð árið 1979 þegar Kristinn Zóphóníasson tók að sér leiðsögn nokkurra hópa fyrir Ferðafélag Íslands en Kristinn var ötull fararstjóri á þessum árum.
Įður höfðu einstakir hópar harðsnúinna ferðalanga farið leiðina en óbrúaðar ár á Emstrum svo og Kaldaklofskvísl voru lengi töluverður farartálmi.
til baka
Leit
Mynd




















