Matarmenning og smjör á stráum í Reykhólasveit
Dagsetning: 20.8.2010
Brottfararstaður: Hótel Bjarkalundur kl 21
Viðburður: Matarmenning og smjör á stráum í Reykhólasveit
Erfiðleikastig:

Lýsing:
H-9
Matarmenning og smjör á stráum í Reykhólasveit
20.-22. ágúst. Staður-Laugaland-Skáleyjar-Þatey-Borgarland, í samstarfi við Staðarbændur og Eyjasiglingu
Fararstjóri: Sigfríður Magnúsdóttir. Hámarksfjöldi: 20
þátttakendur koma á eigin bílum að Hótel Bjarkalundi og safnast þar saman föstudagskvöldið 20. ágúst kl. 21. Kynning á ferðinni og staðháttum. Svefnpokagisting.
Laugard. 21. ágúst: Eftir morgunverð er lagt upp frá Staðarbryggju með Eyjasiglingu undir leiðsögn Björns Samúelssonar og Skáleyjar og Þatey heimsóttar. Léttur hádegisverður í Þatey. Síðdegis verður eyðibýlið Laugaland kannað. Þar er æðarvarp, jarðhiti og gömul sundlaug. Villibráðarkvöldverður í skemmunni á Stað.
Sunnud. 22. ágúst: Eftir morgunverð er gönguferð um Borgarland undir leiðsögn Björns Samúelssonar. Borgarland er lítið nes á milli Króksfjarðar og Berufjarðar. Ytri hluti þess er þekktur fyrir fallegar klettaborgir og aðrar bergmyndanir þar sem stuðlaberg er algengt. Yst á nesinu er Bjartmannssteinn sem talinn er vera aðal kaupstaður álfa á svæðinu. Þetta er forn gígtappi sem er um 55 m hár og sést víða að. Hádegisverður í skemmunni á Stað. Að loknum hádegisverði er gestum velkomið að fara í berjamó í Berufirði. Heimferð þegar hverjum og einum hentar.
Verð: 39.000 / 44.000. Innifalið: Svefnpokagisting í tveggja manna herbergjum, 2 morgun-verðir, 2 hádegisverðir, villibráðarveisla, sigling um Breiðafjörð og fararstjórn. Eigin bílar alla ferðina.
til baka


















