Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Vor í Árneshreppi

Ferðir - RSS
Númer: H-20
Dagsetning: 22.4.2010 - 1.1.1900
Brottfararstaður: Valgeirsstaðir
Viðburður: Vor í Árneshreppi
Erfiðleikastig: Miðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.) oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár • þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfunMiðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.) oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár • þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun
Lýsing:

Þessari ferð hefur verið aflýst vegna þátttökuleysis, 12. apríl.  

Vor í Árneshreppi 

Ferðafélag Íslands efnir til sumarmálaferðar undir yfirskriftinni: Vor í Árneshreppi.  Dvalið verður í þrjá daga á Valgeirsstöðum í Norðurfirði við fjallgöngur á sjaldfarna og tignarlega tinda í nágrenninu, sundferðir og rannsóknir á litríkri sögu staðarins í fortíð og nútíð.
Þátttakendur fara á eigin bílum úr Reykjavík norður í Árneshrepp á sumardaginn fyrsta 22. apríl. Haft verður samflot að fornum sið og áð á völdum stöðum á leiðinni. Síldarminjasafnið á Djúpuvík heimsótt undir leiðsögn staðarhaldara og þaðan ekið út að Gjögri og gengið á Reykjaneshyrnu síðdegis til að átta sig .
Undir kvöld koma menn sér fyrir á Valgeirsstöðum og demba sér í sund í Krossnesi um kvöldið. Daginn eftir, á föstudag, er gengið á Kálfatinda sem gnæfa tignarlegir yfir Norðurfirði og af lokinni sundferð er kvöldmatur og kvöldvaka.
Á laugardegi er gengið á Töflu eða Finnbogastaðafjall og síðdegis eigum við stefnumót við fróða heimamenn sem segja okkur frá sögu sveitarinnar og undarlegum hlutum sem hún geymir. Um kvöldið er kvöldvaka á Valgeirsstöðum og vonandi kemur leynigestur á vökuna.
Á sunnudegi taka menn saman og aka heimleiðis með viðkomu á merkum sögustöðum í Árneshreppi  þar sem hryllilegir atburðir gerðust og rifjum upp helstu atvik Flóabardaga sem lauk á þessum slóðum á söguöld.
Þótt nóttin sé að verða björt um sumarmál er allra veðra von. En þátttakendur vilja fagna komu vors og sumar og leggjast í fang náttúrunnar hvernig sem viðrar og skulu því  vera búnir til óveðursgöngu ekki síður en sólbaða.
Fararstjórar eru Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir. Innifalið í verði er gisting á Valgeirsstöðum og fararstjórn.
Verð: 18.000 fyrir félagsmenn 22.000 fyrir aðra. Innifalið í verði er gisting á Valgeirsstöðum og fararstjórn.

Vor í Árneshreppi
 

Náttúrufegurð og kyrrð í Árneshreppi hrífur ferðalanga. Horft frá bryggju á Norðurfirði yfir sléttan sjó og fögur fjöll.


 

til baka

Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

I nagrenni Landmannalauga

Veldu ferðafélag