Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Gosskoðunarferðir í Þórsmörk

Ferðir - RSS
Dagsetning: 2.4.2010 - 1.1.1900
Brottfararstaður: Mörkin 6
Viðburður: Gosskoðunarferðir í Þórsmörk
Lýsing:

Ferðafélag Íslands býður upp á dagsferðir í Þórsmörk alla páskana, rútuferðir með fararstjórum.

Lagt er af stað frá Mörkinni 6 kl. 9 alla daga, Skírdag, Föstudaginn langa, laugardag, Páskadag og annan í Páskum.    Ekið er í Skagfjörðsskála í Langadal í Þórsmörk. 

Boðið er upp á gönguferðir með leiðsögn bæði á Valahnúk og upp á Morinseheiði að gosstöðvunum. 

Gönguferð á Valahnúk tekur innan við klukkustund en gönguferð um Morinsheiði, upp Bröttufönn að gosstöðvunum er 5 - 6 klst ganga. 

Nauðsynlegt er að vera vel búinn í ferðinni, með góðan hlífðarfatnað, góða gönguskó og nesti. 

Verð í ferðina er kr. 10.000 / 12.000.  Frítt fyrir börn og unglinga yngri en 16 ára.  Skráning og greiðsla á skrifstofu FÍ.


 

til baka

Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Sumarleyfisferð í Héðinsfjörð

Veldu ferðafélag