Gosskoðunarferðir í Þórsmörk
Brottfararstaður: Mörkin 6
Viðburður: Gosskoðunarferðir í Þórsmörk
Lýsing:
Ferðafélag Íslands býður upp á dagsferðir í Þórsmörk alla páskana, rútuferðir með fararstjórum.
Lagt er af stað frá Mörkinni 6 kl. 9 alla daga, Skírdag, Föstudaginn langa, laugardag, Páskadag og annan í Páskum. Ekið er í Skagfjörðsskála í Langadal í Þórsmörk.
Boðið er upp á gönguferðir með leiðsögn bæði á Valahnúk og upp á Morinseheiði að gosstöðvunum.
Gönguferð á Valahnúk tekur innan við klukkustund en gönguferð um Morinsheiði, upp Bröttufönn að gosstöðvunum er 5 - 6 klst ganga.
Nauðsynlegt er að vera vel búinn í ferðinni, með góðan hlífðarfatnað, góða gönguskó og nesti.
Verð í ferðina er kr. 10.000 / 12.000. Frítt fyrir börn og unglinga yngri en 16 ára. Skráning og greiðsla á skrifstofu FÍ.
til baka
Leit
Mynd


















