Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Hátíð í Heiðmörk - gönguferð í landnemareit FÍ

Ferðir - RSS
Dagsetning: 24.6.2010
Brottfararstaður: Heiðmörk við reit Ferðafélags Íslands
Viðburður: Hátíð í Heiðmörk - gönguferð í landnemareit FÍ
Lýsing:

Skógræktarfélag Reykjavíkur fagnar 60 ára afmæli Heiðmerkur um þessar mundir. Að því tilefni verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna á vegum félagsins í Heiðmörk.

Hátíð stendur yfir og eru allir atburðir þar ókeypis og hefjast þeir kl. 20:00 á hverju kvöldi í heila viku.

Sem dæmi má nefna fuglaskoðun með Jakobi Sigurðssyni, tálgunarnámskeið fyrir börn og fullorðna með Ólafi Oddssyni, veiðinámskeið og grillaður fiskur með Jóni Kristjánssyni, gönguferð um landnemareit Ferðafélags Íslands undir leiðsögn Auðar Kjartansdóttur sem endar á hjá Norðmönnum í  þeirra ,,hyttu“  á Torgeirsstöðum. 

Fimmtudagskvöld kl. 20:  Gönguferð um landnemareit Ferðafélags Ísladns með fararstjórum, þátttaka ókeypis og allir velkomnir.  Ekið er í Heiðmörk hjá Rauðhólum, fram hjá bænum Elliðavatni og áfram sem leið liggur í gegnum Heiðmörk, framhjá Silungapolli og efst eftir beina kafla vegarins upp brekkurnar er reitur Ferðafélagsins.

Einnig verður haldin ráðstefna um helstu málefni Heiðmerkur föstudaginn 25. júní frá kl. 14:00 til 17:00 í Gamla salnum á Elliðavatni. Að kvöldi sama dags verða svo tónleikar.

Laugardaginn 26. júní verður síðan  litskrúðug Fjölskylduhátíð frá 13:00 til 16:00 á Vígsluflötinni þar sem borgarstjóri gróðursetur tré, tréskurðarlistamenn sýna listir sínar og úrval skemmtilegra skógarleikja verða í boði svo eitthvað sé nefnt.

Dagskráin endar svo með ókeypis veiði í Elliðavatni


 

til baka

Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Framhjagangan mikla Heydalsa

Veldu ferðafélag