Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Gengið um Fljótafjöllin

Ferðir - RSS
Númer: H-H-16
Dagsetning: 22.7.2010
Brottfararstaður: Bjarnargil
Viðburður: Gengið um Fljótafjöllin
Lýsing:

                          Gengið um Fljótafjöllin

                                  Helgarferð  22 – 25. júlí 2010    Nýtt

 (Verð: 34.000.- kr. uppbúið rúm og fullt fæði. Fararstjóri Trausti Sveinsson) 

22-7 fimmtudag  komið í Bjarnargil

23-07

Blákápugarður skoðaður og rætt um söguna. Gengið upp á Barðshyrnu og fram (Skipið) Brekkufjall. Gengið að þeim stað sem fararstjóri upplifði mikið náttúruundur fyrir 5 árum og sagt frá. Gengið niður Skeiðsdal að Skeiðsfossvirkjun, hún skoðuð.

Göngutími ca 6-7 tímar.

24-07

Farið fram á Lágheiði og gengið inn Klaufabrekknadal upp á Hestfjall. Þaðan er gott útsýni yfir framtíðar útivistarsvæði Tröllaskagans. Þaðan verður gengið yfir í Svarfaðardal í gegn um Klaufabrekknaskarð niður að ferðaþjónustubænum Skeiði.

Þar verða þegnar veitingar. Ekið með rútu heim í Bjarnargil með viðkomu í sundlaug á Dalvík eða Ólafsfirði.

25-07

Boðið verður upp á ca 4 tíma göngu upp á fjallið fyrir ofan Bjarnargil, Holtshyrnu. Þaðan er afar gott útsýni yfir Fljótin og út á haf. Berjalöndin skoðuð á leiðinni.

Heimferð síðla dags. 

(Verð: 30.000.- kr. uppbúið rúm og fullt fæði. Fararstjóri Trausti Sveinsson) 

Skráning á traustisveins@gmail.com eða í síma 467-1030 eða 866-8788

 

 

 

til baka

Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Framhjagangan mikla Heydalsa

Veldu ferðafélag