Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Brynjudalur-Glymur-Botnsdalur.

Ferðir - RSS
Númer: H-19
Dagsetning: 9.9.2007
Brottfararstaður: Brottför frá Mörkinni 6 kl.10
Viðburður: Brynjudalur-Glymur-Botnsdalur.
Lýsing:
  • 2-3 skór
  • 9. september
  • Göngtími 5-6 klst.
  • Fararstjóri: Leifur Þorsteinsson
  • Nánar: Gönguleiðir upp úr Botni Hvalfjarðar
  • Verð kr. 2000 / 4000

Brynjudalur er afar fallegur og gróðursæll, umgyrtur háum fjöllum á báða vegu. Norðan dals heitir Múlafjall en sunnan eru það Bolafell og Suðurfjall og Þrándarstaðafjall vestast. Innst í dalbotninium heita Þrengsli. Brynjudalur státar af  ótal giljum, flúðum og fossum sem vert er að gefa gaum. Eftir dalnum miðjum rennur Brynjudalsá sem á upptök sín í Sandvatni austan Djúpadalsborga.

Við hefjum gönguna þar sem bílvegurinn endar rétt innan við Hrísakot og göngum inn dalinn með Brynjudalsána á hægri hönd alveg þar til komið er á móts við Þórisgil. Það er ægifagurt gil með ótal flúðum og fossum, einn undraheimur þar sem auðvelt er að gleyma stund og stað.

Upp með því göngum við, upp á Sandhrygg yfir Hrísháls og niður í Botnsdal eftir gilinu sem Hvalskarðsáin rennur eftir. Ef veður og aðstæður leifa verður gengið upp eftir Glimsgilinu og yfir það. Reynt verður að komast á þann stað þar sem Glymur sést allur. Gangan endar síðan við hliðið hjá Stóra-Botni í Botnsdal.

Skoða kort af gönguleiðinni

Myndir frá gönguleiðinni

Brynjudalur í Haustlitum-400
Brynjudalur í haustlitum

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hvalskarðsá-400
Hvalskarðsá

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þrengsli í Brynjudal-400
Þrengsli í Brynjudal

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hvalsskarð-400
Hvalskarð

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í Þórisgili-400
Í Þórisgili

 

til baka

Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

I nagrenni Landmannalauga

Veldu ferðafélag