Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Kjölur og Karlsdráttur. 2 skór

Ferðir - RSS
Númer: H-3
Dagsetning: 25.7.2008
Brottfararstaður: Mörkin 6 kl 18
Viðburður: Kjölur og Karlsdráttur. 2 skór
Lýsing:

25. – 27. júlí.

Fararstjóri Leifur Þorsteinsson.

1.      dagur. Brottför frá Mörkinni 6 kl. 18. Ekið inn fyrir Innri-Skúta á Kjalvegi og gengið þaðan vestur í skála FÍ við Þverbrekknamúla.

2.      dagur. Gengið suðvestur með Hrútfelli og suður að Hvítárvatni. Þaðan er farið á báti í Karlsdrátt. Í lokin siglt í Hvítárnes, þar sem gist verður seinni nóttina í elsta skála FÍ.

3.      dagur. Ekið til Reykjavíkur. Ýmsir athyglisverðir staðir skoðaðir á leiðinni.

Verð: 22.000/25.000

Innifalið: rúta, gisting, sigling og fararstjórn.

Myndir úr fyrri ferð um Karlsdrátt og siglingu á Hvítárvatni.

Kjölur og Karlsdráttur                  25-27. júlí                  

Fararstjóri: Leifur Þorsteinsson

1.     dagur Brottför frá Reykajvík kl.18,00 og ekið inn fyrir Innri-Skúta á Kjalvegi. Síðan verður gengið beint í vestur og í skála FÍ við Þverbrekknamúla austan Hrútfells á Kili. Þar  verður gist fyrri nóttina.Vaða þarf Svartá sem ekki getur talist mikið mál. Þó er ekki hægt að gera ráð fyrir að hægt sé að stikla á steinum.Gengið að mestu um gróið flatt land. Göngutími 2 klst.

2.     dagur  Við rísum árla úr rekkju því þetta er langur dagur. Fyrst verður gengið inn með Þverbrekkum og síðan í suðvestur með Hrútfell á hægri hönd, fram Fróðárdali (vaða þarf Fróðá framan við Rauðafell) og suður að Hvítárvatni. Þar stígum við um borð í bát, siglum um vatnið, m.a. reynum við að komast í Karlsdrátt. Að lokum siglum við í Hvítárnes. Allt er þetta svolítið háð veðri. Ganga þarf í u.þ.b. ½ klst upp í skálann í Hvítárnesi þar sem við gistum seinni nóttina. Gengið að mestu um ógróið land og talsvert upp og niður, þó ekki bratt. Ganga og sigling 8-10 klst

3.     dagur Tökum til í skálanum og höldum heim á leið. Ýmsir athyglisverðir staðir skoðaðir á leiðinni heim eftir því sem tími vinnst til. 

 

 

Ýmsar sögur, sumar í þjóðsganastíl, eru tengdar þessu svæði. Þar ber hæst söguna af helför Reynistaðabræðra 1780 og söguna af Bergþóri í Bláfelli og konu hans Hrefnu. Þessu öllu verða gerð góð skil í ferðinni.


 

til baka

Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Framhjagangan mikla Heydalsa

Veldu ferðafélag