Sæludagar í Svarfaðardal – 6 dagar
Dagsetning: 6.7.2008
Brottfararstaður: Húsabakki í Svarfaðardal
Viðburður: Sæludagar í Svarfaðardal – 6 dagar
Lýsing:
NORÐURLAND. 3 skór
Gönguferð og ævintýradvöl í Svarfaðardal dagana
6. til 11. júlí 2008. Fararstjóri: Kristján Eldjárn Hjartarson.
Í samvinnu við Kristján Eldjárn Hjartarson, að Tjörn í Svarfaðardal, er boðið upp á fimm daga ævintýradvöl í Svarfaðardal. Allt í einum pakka; fjölbreyttar gönguleiðir, jarðfræði, fuglaskoðun, jurtagreining, örnefnahugleiðingar og þjóðfræði, í bland við alþýðukveðskap og innansveitarkróniku. Kristján verður fararstjóri ásamt fleiri heimamönnum.
Verð kr 45.000/48.000.
Innifalið: fullt fæði, húsnæði og leiðsögn.
Þátttakendur mæti að Húsabakka í Svarfaðardal, sunnudaginn 6. júlí kl 20, en þá verður herbergjum úthlutað og farið yfir ferðaáætlun komandi viku, yfir kaffisopa og kleinum. Gist verður á Húsabakka allan tímann. Þar eru rúm en fólk þarf að hafa með sér sængurföt eða svefnpoka.
1. Mánudagur 7. júlí: Gengið “Vikið” í kringum Karlsárfjall. Gengið frá Sauðárkoti í Ólafsfjarðarmúla upp í Sauðdal, sem er stuttur en ákaflega fallegur smádalur, girtur háum og tígurlegum hnjúkum allt um kring og með sjálfan Kerahnjúk í öndvegi. Dalurinn hækkar jafnt og þétt inn í botninn og endar með snöggri brekku upp í sjálft Vikið, á milli Sauðdals og Kalsárdals. Þegar upp í Vikið er komið, blasir fjallahringur Svarfaðardals við yfir Bæjarfjallið og útsýni inn Eyjafjörð. Gengið er niður í Karlsárdal, allar götur að Karlsá. Í Karlsárdal er sérlega blómleg flóra villtra plantna. (U.þ.b. 6 tíma ganga og 770 m hækkun).
2. þriðjudagur 8. júlí: Gengið að Nykurtjörn. Nykurtjörn liggur í um 650 m hæð, beint upp af bænum Brekku í Svarfaðardal. Stikuð leið hefst við bæinn Steindyr og gengið er upp gróðursælar hlíðar meðfram Þveránni að Steindyrafoss. Þarna er fjölbreitt plöntuflóra sem verður greind eftir fremsta megni. Þegar komið er upp á hjalla, nokkru ofan við fossinn, er sveigt til norðurs og gengið undir Bakkabjörgum að gili einu miklu; Grundargili, en í því rennur lækurinn sem á upptök sín í Nykurtjörn. Göngunni er fram haldið með gilinu upp að Nykurtjörninni sem kúrir undir Litlahnjúki og Digrahnjúki sem eru í um og yfir 1100 m h y s. Þegar haldið er heim, er farið nokkurn veginn beint niður hlíðina sunnan við Hrafnabjörg með stefnu á Húsabakka. (U.þ.b. 6 tíma ganga, og 650 m hækkun).
3. Miðvikudagur 9. júlí: Gengið í kringum Hnjótafjall. Farið frá Atlastöðum í Svarfaðardal, fram Neðri-Hnjóta að Heljarbrekkunni og upp að Stóruvörðu efst á Heljardalsheiðinni. Þá sveigt til vinstri með Vörðufjalli að fjallinu Deili, fyrir botn Deildardals og áfram eftir Hákömbum fyrir botn Unadals, allt þar til botn Skallárdals blasir við. Gengið niður Skallárdal að Atlastöðum. ( U.þ.b. 8 til 9 tíma ganga og 850 m hækkun).
4. Fimmtudagur 10. júlí: Gengið í kring um Hvarfshnjúk. Farið upp frá Hofi í Svarfaðardal, gengið upp með Hofsá og upp að Goðafossi, áfram inn Hofsdal með fjallið Rima á vinstri hönd. Jöfn og örugg hækkun allar götur inn í botn. Ef vill er auðvelt að fara upp á Hvarfshnjúk en þaðan er einstakt útsýni yfir Svarfdælska byggð, út yfir Dalvík, út Eyjafjörð og allt til Grímseyjar. Gengið er niður í Ytri-Sæludal, út hjallana ofan við Syðra-Hvarf og niður að sumarbústaðahverfi á Hvarfinu. (U.þ.b. 8 tíma ganga og 900 m hækkun).
5. Föstudagur 11. júlí: Genginn hringur um láglendi Svarfaðardals, með viðkomu á söguþekktum slóðum; s.s. Sundskála Svarfdæla, Gullbringu, Arngrímsstofu og Tjörn. Farið um friðland Svarfdæla og fuglalíf skoðað og endað á Húsabakka. (U.þ.b. 4 tíma létt láglendisganga).
til baka
Leit
Mynd


















