Gengið um Fljótafjöllin og yfir til nágrannabyggða. 3 skór
Dagsetning: 15.7.2008
Brottfararstaður: Bjarnargil í Fljótum
Viðburður: Gengið um Fljótafjöllin og yfir til nágrannabyggða. 3 skór
Lýsing:
15. – 19. Júlí.
Hámarksfjöldi þátttakenda: 30.
Fararstjórar: Sigríður Lóa Jónsdóttir og Trausti Sveinsson.
Fljótin eru rómuð fyrir fegurð og fjölbreytt gróðurfar sem áhugavert er að kynnast og spennandi gönguleiðir liggja til allra átta. Gist verður á Bjarnargili í Fljótum og verður boðið upp á gistingu í uppábúnum rúmum, gistingu í hjólhýsi eða að þátttakendur sofi í tjöldum sem þeir hafa meðferðis. Góð sundlaug og heitur pottur er við Sólgarðaskóla í 5 km fjarlægð frá Bjarnargili. Gert er ráð fyrir sameiginlegum mat allan tímann og að þátttakendur taki þátt í matatgerð og frágangi.
Farþegar komi á eigin vegum að Bjarnargili síðla dags mánudaginn 14. júlí.
1. dagur:
Ekið til Siglufjarðar með rútu snemma morguns. Gengin Botnaleið úr Hólsdal inn að Bjarnargili. Þessi leið var fjölfarin um aldir á milli Fljóta og Siglufjarðar. Ægifögur leið í góðu veðri með mikið víðsýni. Hækkun u.þ.b. 700 m, 6-7 tíma ganga.
2. dagur:
Gengið á Grænuvallahnjúk (904 m) sem er á milli Fljóta og Héðinsfjarðar. Grænuvallahnjúkur er allsérstakur hnjúkur og líkist pýramída. Þaðan verður gengið fyrir botn Héðinsfjarðar, niður í Garðsdal og til Ólafsfjarðar. Áætlaður göngutími 8 klst. Kaffihlaðborð bíður hópsins í Ólafsfirði og þar verður einnig boðið upp á sund. Farið með rútu til baka að Bjarnargili, u.þ.b. 40 km leið.
3. dagur:
Gengið upp á fjallið fyrir ofan Bjarnargil sem heitir Holtshyrna (500 m) og fram Hólafjall á Gilshnjúk en þaðan er gott útsýni yfir Stífluna, sem er fremsti hluti Fljótanna og einstök náttúrusmíð. Gangan þennan dag verður 4-5 tímar. Kvöldvaka að hætti hópsins.
4. dagur:
Þennan dag verður gengin svokölluð Hólamannaleið úr Fljótum til Hóla í Hjaltadal. Gangan hefst við frá Þrasastaði og síðan verður haldið upp Móafellsdal og um Hákamba. Þaðan er fagurt útsýni yfir Skagafjörð og Svarfaðardal. Af Hákömbum liggur leiðin niður Heljardalsheiði og í Kolbeinsdal, þangað sem hópurinn verður sóttur. Gangan þennan dag verður 10-12 tímar og hækkun frá byrjun ferðar u.þ.b. 700 m. Sund og síðan grillveisla á Hólum .
5. dagur:
Skoðunarferð um Fljótin. Gengið frá Bjarnargili eftir fornminjum sem nefnast Blákápugarður og að Barðskirkju. Farið á bílum inn í Flókadal og síðan litast um í Haganesvík sem er gamall útgerðar- og verslunarstaður. Að lokum verður farið að Hraunum og þar skoðaðar gamlar verbúðir. Kveðjukaffi á Bjarnargili um kl. 16.
Verð kr. 60.000 / 55.000 / 50.000
Innifalið í verði ferðarinnar: Gisting, fararstjórn, fullt fæði og akstur á svæðinu.
til baka


















