Með eilífðinni á Arnarvatnsheiði. Surtshellir, gígur, hraun og veiði
Dagsetning: 30.7.2008
Brottfararstaður: Mörkin 6 kl. 13
Viðburður: Með eilífðinni á Arnarvatnsheiði. Surtshellir, gígur, hraun og veiði
Lýsing:
HÁLENDIÐ 3 skór
Með eilífðinni á Arnarvatnsheiði. Surtshellir, gígur, hraun og veiði
30.júlí – 4. ágúst.
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir.
Hámark: 15.
Brottför frá Mörkinni 6
Afar fáfarin gönguleið um afréttir Borgfirðinga og Vestur Húnvetninga. Lagt er upp frá vaði á Norðlingafljóti meðfram Eiríksjökli og upp undir Langjökul. Þaðan er haldið norðvestur yfir Arnarvatnsheiði og niður í Miðfjörð. Engan mat þarf að bera í ferðinni.
1.d: Brottför með rútu kl 13 frá Mörkinni 6. Ekið fram hjá Húsafelli. Surtshellir
skoðaður á leiðinni að Norðlingafljóti. Farangur er fluttur í náttstað. Gengið í
Álftakrók. (U.þ.b. 9 km). Þar bíður hópsins heitur matur. Gist í gangnakofa.
2. dagur:: Gengið upp í kofann í Fljótsdrögum. (U.þ.b. 18 km). Þar er gist í tvær nætur.
3. dagur:: Gengið upp í gíginn sem Hallmundarhraun rann úr fyrir um 1100 árum og upp
á Jökulstalla utan í Langjökli. 18 km dagur. Aftur gist í Fljótsdrögum.
4.dagur:: Gengið frá Fljótsdrögum yfir Langajöfra og síðan yfir Skammá, á milli
Réttarvatns og Arnarvatns. Gengið meðfram Sesseljuvík að Lónaborg við Grandalón.
Þar er gist í 2 nætur. 20 km göngudagur.
5. dagur:: Dvalið um kyrrt í Lónaborg. Veitt í matinn. Jurtagreining og fuglaskoðun. Um
kvöldið er veiðin grilluð. Gist aftur í Lónaborg.
6.dagur:: Gengin um fimm km leið upp á veginn sem liggur úr Miðfirði og að Arnarvatni.
Rúta sækir hópinn og ekur honum í sund á Hvammstanga. Að því loknu bíður
vegleg máltíð hópsins á Brekkulæk í Miðfirði. Að loknum kvöldverði er
ekið með hópinn í bæinn og skilað að Mörkinni 6. Komið í bæinn um 22.
Verð: 42.000 /45.000
Innifalið: Gisting í 5 nætur, matur (6 x kvöldverður, 5 x
morgunverður, 5 x nesti), allur akstur, silungsveiði í matinn, sund á Hvammstanga.
til baka


















