Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Ganga - kajak - reiðhjól

Ferðir - RSS
Númer: S-Ss - 4
Dagsetning: 10.7.2008
Brottfararstaður: Laugar í Hvammssveit
Viðburður: Ganga - kajak - reiðhjól
Lýsing:

Ganga - reiðhjól - kajak

Trússferð  með  uppihaldi  í 4 daga  um  héruð  f yrir  botni  Breiðafjarðar – Farið  f rá  Laugum  í  Hvammssveit  yf ir  á  Skarðsströnd,  um Klofning,  Fellsströnd  og  Hvammssveit  aftur  að Laugum.

Innifalið:                           Gisting í 8 manna tjöldum með kyndingu, fararstjórn, fullt fæði (morgunmatur, nesti og kvöldmatur (dægilegar krásir heimamanna))

Fararstjórar:          Jón Jóel Einarsson, með rætur í byggðinni og hans frú Maggý Magnúsdóttir. Gamlir útivistarjaxlar.

Fararskjótar:         Reiðhjól – leiga kr. 4.000 (best að koma með sitt eigið). Kajak – leiga kr. 6.500       Hvort tveggja þarf að panta með viku fyrirvara.

Hvenær:               10.-13. júlí, 2008  

Hámarksfjöldi:      25 manns

Verð:                   47.000 kr.


Sérstaða þessarar ferðar er FJÖLBREYTNI í náttúrufari inn til dala, upp til fjalla og út til stranda. Gengið um dalanna kyrrð, hjólað um fáfarna sveitavegi og róið á kajak inn um hólma og sker, fugla og sérkennilegar sjókindur. Fornsögur rifjaðar upp og sögustaðir skoðaðir. Heilsað upp á heimamenn og hlustað á þjóðsögur, ýkjusögur og gamansögur. Skoðað hvílík firn Dalirnir hafa lagt til menningararfs þjóðarinnar, t.d. í bókmenntum og myndlist. Spáð í mannlífið á svæðinu fyrr og nú og ýmsa möguleika byggðarlagsins.

Mæting að Laugum í Sælingsdal. Þar er rekið Eddu hótel og prýðilegt tjaldsvæði, sundlaug og heitir pottar. Geyma má þar bíl o.fl. á meðan á ferðinni stendur.

1. dagur: Gengið kl. 9:00 frá Laugum í Sælingsdal inn dalinn og upp úr, með viðkomu á sögustöðum, upp á hæsta fjall Dala; Hafratind (900m) og yfir í Fagradal á Skarðsströnd. Í Fagradal eru fyrstu tjaldbúðir. Þar tekur á móti okkur heimafólk með fangið fullt af næringu, sögum og hjartahlýju.

2. dagur: Hjólað kl. 10 frá Fagradal til Nýp og heilsað upp á fólk sem hugsar stórt og djúpt. Áfram er hjólað út í Skarðstöð, Skarð, Reynikeldu, Á, Ballará… og heilsað upp á heimafólk. Farið um Klofning og dáðst að útsýni yfir eyjarnar og Snæfellsnesið. Þarna erum við komin á einn af fallegri stöðum á landinu hvar við setum upp tjaldbúðir í skjóli listmálarans Helga Þorgils og listakokksins Möggu Lísu.

3. dagur: Kajakferð um Langeyjarnes og Dagverðarnes. Valkostur er göngu- og hjólaferð um svæðið, sérstaklega ef þannig viðrar. Tökum daginn frekar rólega enda er hér mikið að sjá og finna. Sömu tjaldbúðir.

4. dagur: Hjólað kl 10 áfram inn Fellsströnd að Staðarfelli… að Hvammi í Hvammssveit og spjallað við heimamenn. Hjólin skilin þar eftir og gengið yfir fjallið til Lauga. Þar lýkur ferðinni með góðri máltíð á Hótel Eddu.

 

Sjá nánari upplýsingar á slóðinni www.123.is/jojo



 

til baka

Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

I nagrenni Landmannalauga

Veldu ferðafélag