Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Morgungöngur FÍ

Ferðir - RSS
Númer: D-3 - E
Dagsetning: 7.5.2010
Brottfararstaður: Brottför kl. 6 frá Mörkinni 6.
Viðburður: Morgungöngur FÍ
Erfiðleikastig: Miðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.) oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár • þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfunMiðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.) oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár • þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun
Lýsing: 3.-7. maí, mánudagur - föstudags

Fararstjórn: Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir

Á fjöll við fyrsta hanagal. Fjallganga í nágrenni Reykjavíkur eldsnemma morguns, alla daga vikunnar. Komið til baka um kl. 9. Farið á einkabílum.

Þátttaka ókeypis, allir velkomnir.

Við fyrsta hanagal 

„Hann Tumi fer á fætur, við fyrsta hanagal,” segir í kvæði sem öll börn á Íslandi kunnu áður en sjónvarpið náði almennri útbreiðslu og er sungið við lag eftir Wolfgang Amadeus Mozart.

Ferðafélag Íslands hefur í nokkur ár vaknað við fyrsta hanagal í eina viku á hverju vori og staðið fyrir svokölluðum morgungöngum. Þessar hressandi göngur hafa notið mikilla og sívaxandi vinsælda undanfarin ár og virðast margir nota þetta tækifæri til að hefja göngusumarið og gera átak fyrir sig persónulega.
Í þessum ferðum er lögð áhersla á þá einstæðu samvist við náttúruna sem býðst á þessum tíma sólarhrings þegar fólkið er sofandi er fuglarnir eru að vakna og allt leiftrar og logar af lífi á íslenskum vormorgni. Göngurnar eru fyrst og fremst hugsaðar sem hressandi morgunstemmning í kátum félagsskap fremur en svínslega erfiðar fjallgöngur.

Fyrirkomulagið er með þeim hætti að fimm morgna í röð, fyrst á mánudegi safnast fólk saman í Mörkinni við hús Ferðafélags Íslands og heldur af stað þegar klukkan er nákvæmlega sex að morgni. Haldið er að einhverju fjalli í nágrenni Reykjavíkur og getur fólk sameinast í bíla í Mörkinni eða komið beint að upphafsstað göngu. Síðastliðið ár var gengið á Helgafell við Hafnarfjörð, Keili, Vífilfell, Úlfarsfell og Helgafell í Mosfellssveit.

Ýmislegt er gert til að auðga andann í þessum ferðum. Stundum hafa skáld og prestar slegist í för og haldið erindi á fjallstindi og tvisvar sinnum hefur karlakór mætt í síðustu gönguna og sungið ferðalanga inn í daginn á toppi ÚIfarsfells. Síðasta daginn er einnig morgunhressing á tindinum í boði Ferðafélagsins.

Vorið 2010 eru morgungöngurnar á dagskrá dagana 3-7 maí að báðum dögum meðtöldum. Hvaða fjöll verða fyrir valinu verður nánar auglýst síðar en líklega verður listinn svipaður og síðastliðið vor.
Það eru hjónin Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir sem stjórna morgungöngunum eins og tvö undanfarin ár.
 

Þátttakendur þurfa nánast ekkert nema viljann til þess að vakna með hröfnum á morgnana, og auðvitað góðan fatnað og gönguskó en ekkert gjald er tekið af morgungörpum. Gott er að hafa göngustafi og luma á vatnsbrúsa eða hitabrúsa í bakpokanum. Svo safnast menn saman í Mörkinni og halda þaðan á vit fjallanna stundvíslega klukkan sex.


 

til baka

Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

I nagrenni Landmannalauga

Veldu ferðafélag