Beint į leišarkerfi vefsins
Aftur į forsķšu vefs

Hrśtfjallstindar

Feršir - RSS
Nśmer: D-8
Dagsetning: 15.5.2010
Brottfararstašur: Ekiš į einkabķlum ķ Skaftafell
Višburšur: Hrśtfjallstindar
Erfišleikastig: Erfišar og langar dagleišir (jafnvel yfir 10 klst.) gengiš ķ fjalllendi meš allt į bakinu • mį bśast viš erfišum įm • ašeins fyrir fólk ķ mjög góšri žjįlfunErfišar og langar dagleišir (jafnvel yfir 10 klst.) gengiš ķ fjalllendi meš allt į bakinu • mį bśast viš erfišum įm • ašeins fyrir fólk ķ mjög góšri žjįlfunErfišar og langar dagleišir (jafnvel yfir 10 klst.) gengiš ķ fjalllendi meš allt į bakinu • mį bśast viš erfišum įm • ašeins fyrir fólk ķ mjög góšri žjįlfunErfišar og langar dagleišir (jafnvel yfir 10 klst.) gengiš ķ fjalllendi meš allt į bakinu • mį bśast viš erfišum įm • ašeins fyrir fólk ķ mjög góšri žjįlfun
Lżsing: 15. maí, laugardagur

Umsjón: Jökull Bergmann / Þórhallur Ólafsson

Ekið á einkabílum í Skaftafell og gist flar á eigin vegum.

Lagt af stað snemma morguns í gönguna.

Búnaður: Öryggisbelti, broddar, ísexi, hlífðarfatnaður.  Fæst leigður hjá FÍ á kr. 5000.  Hægt er að leigja staka hluti á kr. 2000.

Undirbúningsfundur í sal FÍ þann 4. maí kl. 18.

Verð kr. 14.000/17.000
Innifalið: fararstjórn

Jökulfossar og klettaborgir

 Fáeinum kílómetrum norðan við Hvannadalshnúk rísa hinir tignarlegu Hrútsfjallstindar upp úr jöklinum og gefa hinum nafntogaða Hvannadalshnúk lítið eftir í hæð eða fegurð en hæsti tindurinn er rétt tæpir 1800 metrar. Til þess að komast þangað þarf að ganga eftir fjallshryggjum og jökli í stórbrotnu umhverfi jökulfossa og klettaborga.

Žetta er löng ganga og nokkuð erfið en alls þarf að ganga rúma 20 kílómetra og hækkun á göngunni er rúmir 1700 metrar. Þátttakendur þurfa að ganga í línu góðan hluta leiðarinnar og klifurbelti, mannbroddar og ísexi er nauðsynlegur búnaður í svona ferð. Samanborið við göngu á Hvannadalshnúk mun þetta vera styttri leið en brattari og krefst því ámóta þols og þjálfunar. Gangan tekur 17-18 klukkustundir.

 

Žátttakendur koma á sínum eigin bílum í Skaftafell og hittast þar en leggja svo af stað í gönguna eldsnemma að morgni. Gengið er inn með Hafrafelli meðfram brún Skaftafellsjökuls sem liggur þétt að fjallinu og svo upp snarbratta hlíð á brúnir Hafrafells.
Žaðan er haldið inn síhækkandi brúnir hátt yfir Svínafellsjökli sem liggur við fætur göngumanna 800 metrum neðar og sýnist lóðrétt. Útsýnið yfir úfinn jökulfossinn þar sem hann steypist fram úr öskju Öræfajökuls á varla sinn líka á Íslandi. Leiðin liggur áfram um Sveltiskarð og síðan yfir Vestari-Hrútsfjallstind áður en þeim hæsta er náð. Leiðin er nokkuð sprungin á köflum og krefst för um þessar slóðir því hámarksöryggisbúnaðar.

Hér er í boði ógleymanleg ferð um eitt stórbrotnasta landslag á Íslandi sem ætti þó að vera við hæfi flestra sem farið hafa á Hvannadalshnúk.

 

 

til baka

Ašalstyrktarašili FĶ

Stušningsašilar FĶ

Forsķša »

Feršir » Feršir FĶ

Stjórnborš

Forsķša vefsins Stękka letur Minnka letur Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Sumarleyfisferš ķ Héšinsfjörš

Veldu feršafélag