Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Esjan endilöng

Ferðir - RSS
Númer: D-13
Dagsetning: 13.6.2010
Brottfararstaður: Brottför með rútu kl. 8 frá Mörkinni 6
Viðburður: Esjan endilöng
Erfiðleikastig: Nokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfunNokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfunNokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfun
Lýsing: 13. júní, sunnudagur

Fararstjórar: Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir. Gangan hefst undir Móskarðshnúkum, gengið eftir Móskarðshnjúkum, um Laufskörð, á Hábungu og Hátind og farið yfir Kerhólakamb og endað við Esjuberg.

Nauðsynlegt er að skrá sig í ferðina og greiða a.m.k. degi fyrir brottför.

Verð kr. 5.000 / 7000
Innifalið: rúta, fararstjórn


Þetta er áhugaverður og nokkuð krefjandi leiðangur eftir endilöngum fjallabálkinum sem venjulega er kallaður Esja. Ferðin hefst undir Móskarðshnúkum og er gengið upp hjá Bláhnúk og inn á Móskarðahnúk sem er austastur og hæstur í fjallaröðlinum sem oftast er kallaður Móskarðshnjúkar.
Úr Móskörðum er afar falleg og tilkomumikil útsýn yfir Svínadal, Eyjadal og Eilífsdal sem ganga inn í Esjuna að norðan. Sé bjart veður sér allt til Baulu í Borgarfirði og Tröllakirkju á Holtavörðuheiði.
Leiðin liggur síðan gegnum Laufskörð en þar liggur einstigi stuttan spöl og er botn Eyjadals á aðra hönd og botn Þverárdals á hina. Mörgum þykir nokkuð tæpt en stígurinn er traustur og keðja til stuðnings að auki.
Þegar Laufskörðin eru að baki tekur við löng ganga eftir urðum Esjunnar og hafa leiðangursmenn undanfarin ár lent í aurbleytum, stórgrýti og snjósköflum.
Staðnæmst er við Hábungu á miðri leið en þar rís Esjan hæst í 914 metra. Annar kollur nokkru lægri eða 907 metrar er milli Þverárdals og Grafardals og var lengi talinn hæstur og heitir Hátindur.
Fjölda dala skerst inn í Esjuna og má segja að Blikdalur sé þeirra mestur. Af fjallinu er fögur útsýn yfir Kjós og Hvalfjörð og breytist sífellt eftir því komið er vestar á fjallið. Gengið er fram Kerhólakamb á svimandi klettabrúnum yfir Blikdal og haldið síðan niður bratta hlíð að bænum Esjubergi þar sem rúta bíður eftir hópnum.
Þetta er ganga sem tekur nær allan daginn enda 18-20 kílómetrar að lengd.
Eintstakt tækifæri til að kynnast hinu leyndardómsfulla landslagi bæjarfjalls Reykvíkinga.


 

til baka

Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Framhjagangan mikla Heydalsa

Veldu ferðafélag