Síldarmannagötur
Dagsetning: 22.8.2010
Brottfararstaður: Brottför frá Mörkinni 6 kl. 10.
Viðburður: Síldarmannagötur
Erfiðleikastig:


Lýsing:
Fararstjóri: Eiríkur Þormóðsson
Göngutími 4 - 5 klst.
Gengin forn þjóðleið upp úr Hvalfjarðarbotni yfir Botnsheiði og yfir að Fitjum
í Skorradal. Nánar í: Gönguleiðir upp úr Botni Hvalfjarðar, útg. FÍ 2007.
Verð: 5000 / 7000. Innifalið: Rúta og fararstjórn.
Þegar er komið haust í vindinn og lyngið ofurlítið farið að sölna er rétti árstíminn til að ganga fornar þjóðleiðir milli byggða. Síldarmannagötur er þétt vörðuð og skýr leið úr botni Hvalfjarðar yfir að Fitjum í Skorradal. Fegurð Hvalfjarðar er viðbrugðið og á þessum árstíma er landið gjöfult því það eru komin bústin ber á lyng við fótmál ferðalanga. Kjarrið angar, lóan kallar angurvær á hópinn sinn sem fljótlega stefnir til suðurs og lagðprúðir, bústnir dilkar fnæsa að óvæntum gestum.
Síldarmannagötur eru fornt örnefni og talið er að heitið tengist því að fyrrum hafi síld verið veidd í landlás eða króuð af í Hvalfirði og menn hafi komið langt að til að ná sér í silfur hafsins. Á þessari leið fetum við því í fótspor feðra okkar í mjög bókstaflegri merkingu.
til baka


















