Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Um Grímarsfell að Gljúfrasteini

Ferðir - RSS
Númer: D-19
Dagsetning: 5.9.2010
Brottfararstaður: Lagt af stað frá Mörkinni 6 kl. 10:30 í einkabílum.
Viðburður: Um Grímarsfell að Gljúfrasteini
Erfiðleikastig: Miðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.) oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár • þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfunMiðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.) oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár • þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun
Lýsing:

Fararstjóri: Björg Kjartansdóttir

Göngutími 5 - 6 klst.

Bílum lagt fyrir neðan Gljúfrastein. Gengið á Grímarsfell, niður að Helgufossi og í fótspor Nóbelskáldsins meðfram Kaldá. Mikið berjaland er á leiðinni. Endað við Gljúfrastein. Sögulegur fróðleikur við hvert fótmál. þátttaka ókeypis, allir velkomnir.

Halldór Laxness byggði sér hús á æskuslóðum sínum í landi Laxness í Mosfellsdal og bjó þar nær til æviloka. Halldór gekk á hverjum degi sér til heilsubótar um landareignina og mun oftast hafa farið inn að Helgufossi og stundum alla leið upp á ´Grímmansfell. Af fjallinu er sérlega skemmtileg útsýn yfir Mosfellsheiði, fjöll og dali í nágrenni Reykjavíkur. Gönguleiðin er 8-9 km. og ætti að vera á færi flestra.

 


 

til baka

Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Sumarleyfisferð í Héðinsfjörð

Veldu ferðafélag