Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Þórisgil í Brynjudal - Glymur í Botnsdal

Ferðir - RSS
Númer: D-20
Dagsetning: 12.9.2010
Brottfararstaður: Brottför frá Mörkinni 6 kl. 10.
Viðburður: Þórisgil í Brynjudal - Glymur í Botnsdal
Erfiðleikastig: Miðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.) oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár • þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfunMiðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.) oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár • þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun
Lýsing:

Fararstjóri: Leifur Þorsteinsson

 Göngutími 4 - 5 klst. Rúta

Gangan hefst rétt innan Hrísakots í Brynjudal. Gengið upp úr dalnum, upp með

Þórisgili og yfir í Botnsdal. Ef veður og aðstæður leyfa verður gengið upp með Glymsgili og komið á þann stað þar sem Glymur sést allur. Gangan endar síðan  við hliðið hjá Stóra-Botni í Botnsdal. Nánar í: Gönguleiðir upp úr Botni Hvalfjarðar, útg. FÍ 2007.

Verð: 5000 / 7000. Innifalið: Rúta og fararstjórn.

 

Þórisgil í Brynjudal-Glymur í Botnsdal

12 september 

Brynjudalur er afar fallegur og gróðursæll, umgyrtur háum fjöllum á báða vegu. Norðan dals heitir Múlafjall en sunnan Bolafell og Suðurfjall og Þrándarstaðafjall vestast. Brynjudalur státar af  ótal giljum, flúðum og fossum sem vert er að gefa gaum. Eftir dalnum miðjum rennur Brynjudalsá sem á upptök sín í Sandvatni austan Djúpadalsborga. Innst í dalbotninum heita Þrengsli. Fyrrum var búið á fjórum bæjum í Brynjudal, Skorhaga, Þrándarstöðum, Ingunnarstöðum og  Hrísakoti. Allir eru þeir nú í eyði.

Við hefjum gönguna þar sem bílvegurinn endar rétt innan við Hrísakot og göngum inn dalinn með Brynjudalsána á hægri hönd. Slóðin er nokkuð greinileg fjárgata. Svæðið er allt sérlega vinalegt og hýlegt meðfram Brynjudalsánni, kristaltærri, víða með flúðum og smáfossum. Þarna er virkilega hægt að gleyma stund og stað. Rómantískara verður það ekki. Inn með ánni er haldið þar til komið er á móts við Þórisgil. Vestan þess höldum við á brattan. Á kafla er talsvert bratt og því er ástæða til að hvetja fólk til að fara varlega. Gilið er ægifagurt, einn undraheimur, víða með stuðlabergsmyndunum. Ofan gils er komið upp á Sandhrygg. Þaðan göngum við niður í Botnsdal, reynum að vaða Hvalskarðsána komast upp með Glymsgili og að þeim stað sem Glymur sést allur. Gangan endar síðan við Stóra-Botn.

     


 

til baka

Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Framhjagangan mikla Heydalsa

Veldu ferðafélag