Trölladyngja, gönguferð
Dagsetning: 4.7.2010
Brottfararstaður: Mörkin 6 kl 10
Viðburður: Trölladyngja, gönguferð
Erfiðleikastig:


Lýsing:
4. júlí - sunnudagur
Brottför kl. 10 frá Mörkinni 6
Ferð í samstarfi við Landvernd
Leiðsögn: Kristján Jónasson/Sigmundur Einarsson
Fararstjórn: Sigrún Pálsdóttir
Ekið að Trölladyngju um Afstapahraun. Gengið á Trölladyngju. Þaðan í Sog og að Djúpavatni og Grænavatni. Vestur yfir hálsinn að Hvernum eina og eftir Oddafelli að Höskuldarvöllum í rútuna. 6 klst. ganga.
Trölladyngja er austan við Höskuldarvelli og í raun samvaxin Grænudyngju. Frá bílslóð við rætur fjallsins er fremur létt ganga upp á fjallið og þaðan er fagurt útsýni yfir Sogin sem er afar litríkt hitasvæði sem er falið inni á milli fjallanna. Þar fara saman litríkar útfellingar, líparít og grænn gróður í hrífandi blöndu sem kemur flestum á óvart sem koma þarna í fyrsta sinn.
Þarna er fjölbreytt og skemmtilegt landslag, vindsorfnar móbergsbríkur og klettar í margvíslegum myndum. Trölladyngja tilheyrir í raun vestari hálsinum af tveimur sem setja svip á landið á þessum slóðum og heita Vesturháls og Austurháls en heitin Núpshlíðarháls og Sveifluháls eru einnig notuð.
Í nágrenni við Hverinn eina er margt að sjá og á leið göngumanna verða væntanlega minjar um sel og selbúskap á þessum slóðum.
Skráning og greiðsla fer fram á skrifstofu FÍ til kl 14:00 á Föstudaginn 2. júlí
Verð 2500 kr
til baka


















