Ölkelduhįls - Reykjadalur, göngu- og bašferš - Feršir FĶ
Nśmer: D-23Dagsetning: 13.6.2010
Brottfararstašur: Mörkin 6 kl 10
Višburšur: Ölkelduhįls - Reykjadalur, göngu- og bašferš
Erfišleikastig:

Lżsing:
13. júní - sunnudagur
Brottför kl. 10 frá Mörkinni 6
Nú er komið að annarri ferð Landverndar og Ferðafélagsins um jarðhitasvæði í næsta nágrenni höfuðborgarinnar. Að þessu sinni verður litast um á Hellisheiði og Ölkelduhálsi áður en gengið verður niður í Reykjadal en um hann rennur ein af glæsilegri varmám landsins, Reykjadalsá. Þar gefst göngufólki kostur á að hvíla lúin bein og baða sig í ylvolgri ánni. Þaðan verður gengið áfram niður dalinn og upp Hverakjálka til baka. Jarðskjálftasprungur skoðaðar á Bitru.
Leiðsögumenn í ferðinni eru jarðfræðingarnir Kristján Jónasson og Sigmundur Einarsson. Áður en lagt verður í ferðina flytur Kristján stutt erindi um svæðið í sal Ferðafélags Íslands að Mörkinni 6.
Erindið hefst kl. 10 og verður lagt af stað í ferðina kl. 10.30 og komið tilbaka um kl. 16-17.00.
Rútugjald er kr. 2500.-
Skráning og greiðsla fer fram á skrifstofu Ferðafélagi Íslands til kl 14:00 á Föstudaginn 11. júní í síma 568 2533 eða með netpósti til fi@fi.is.
Rétt er að taka fram að engin aðstaða er á staðnum til að skipta um föt sem með smá hagræðingu ætti þó ekki að koma að sök. Við minnum ferðalanga á að taka með nesti, baðföt og handklæði.
Įfangastaðir Landverndar og Ferðafélagsins í sumar eiga það sammerkt að búa yfir einstakri náttúrufegurð, auk þess að vera álitnir gjöful orkuvinnslusvæði. Tilgangur okkar er að fræðast um jarðfræði á suðvesturhorninu, skoða hvernig framkvæmdaraðilar ganga um orkuvinnslusvæðin og njóta um leið útivistar í einkar sérstæðri náttúru.
Hugmyndir um að stofna eldfjallagarð á Reykjanesi hafa lengi verið við lýði og má lesa sig til um það efni á vef Landverndar.
Verð 2500 kr
til baka
Leit
Mynd




















