Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Söguganga: Vakað með Vatnsdælu: Prúðmenni og skaphundar,

Ferðir - RSS
Númer: S-1
Dagsetning: 21.5.2010
Brottfararstaður: Hof í Vatnsdal kl. 14
Viðburður: Söguganga: Vakað með Vatnsdælu: Prúðmenni og skaphundar,
Erfiðleikastig: Miðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.) oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár • þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfunMiðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.) oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár • þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun
Lýsing:

NORÐURLAND

Söguganga: Vakað með Vatnsdælu: Prúðmenni og skaphundar,

útburðir og Ættartangi 

21.-24. maí, hvítasunna, 4 dagar

Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir. Leiðsögumaður: Magnús Jónsson.

Hámarksfjöldi: 24

Aðsetur sögugöngunnar í ár verður að Hofi í Vatnsdal. Landnámsjörð Ingimundar gamla. Þar er aðstaða fyrir sameiginlegan mat og samverustundir í félagsskap Vatnsdælu. Þar verður gist í 3 nætur. Svefnpokagisting í rúmum.

1. dagur, föstudagur: Fólk kemur sér á eigin bílum að Hofi í Vatnsdal. Kl.14 verður sameinast í bíla og ekið að upphafsstað göngu fyrsta dags. Ekið verður að Ási og síðan Snæringsstöðum gegnt Hofi og gengið á Fell, þaðan sem má glöggva sig á sögusviðinu.

2. dagur: Ekið fram að Þvergili. Þaðan er gengið meðfram gljúfrum að Grímstunguseli, síðan þvert yfir Hestás að Glámsþúfu í Forsæludal með léttu hliðarspori í Grettissögu. Þar er gengið meðfram hrikalegu Vatnsdalsárgili að Þórhallastöðum (ca. 12 km).

3. dagur: Ekið að bænum Hjallalandi. Þar er gengið upp hjallana og upp á Sjónarhól (870 m) og síðan suður Vatnsdalsfjall og komið niður að Eyjólfsstöðum.

4. dagur: Gengið um Þórdísarlund, Vatnsdalshóla og Þrístapa áður en haldið er heim á leið.

Verð: 26.000 / 31.000

Innifalið: Gisting, leiðsögn. Sameiginlegur matur er ekki innifalinn í verði.


 

til baka

Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

I nagrenni Landmannalauga

Veldu ferðafélag