Gönguskíðaferð í Landmannalaugar - 4 dagar
Dagsetning: 22.4.2010
Brottfararstaður: Farið með rútu / jeppum frá Mörkinni 6 kl. 8
Viðburður: Gönguskíðaferð í Landmannalaugar - 4 dagar
Lýsing: 22.- 25. apríl, 4 dagar
Fararstjórar: Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir
Hámarksfjöldi: 24
Farið með rútu / jeppum frá Mörkinni 6 kl. 8 og ekið að Sigöldu eða Bjallavaði þaðan sem gengið er á skíðum í Landmannalaugar þar sem dvalið er í tvo daga við göngu og skemmtun.
Verð: 24.000 / 29.000
Innifalið: Jeppaferð, trúss, gisting, fararstjórn.
Leiðin inn í Landmannalaugar frá Sigöldu og austur að Bjallavaði fylgir háspennulínu gegnum slétt hraun meðfram Krókslóni. Skammt fyrir austan Bjallavað þverbeygir leiðin og liggur um slétta sanda og ása meðfram Hnausum og Tjörvafelli inn að Frostastaðavatni og þaðan austur yfir Frostastaðaháls uns komið er í Laugar.
Leiðin frá Sigöldu er í kringum 25 km. en á sléttu landi og sé nægur snjór er þetta frábært skíðaland. Vanti snjó verður ekið lengra með hópinn, líklega að Bjallavaði og þaðan eru um 10 km í Laugar.
Landmannalaugar eru frábær staður bæði að sumri og vetri en búa yfir sérstökum töfrum á veturna og ekki spillir að lækurinn að jafnaði heitari á vetrum en sumrum og afar sérstæð upplifun að tipla út að læk í hörkufrosti og myrkri og liggja svo í sjóðheitu vatninu og horfa upp í ómælisvídd stjörnuhimins.
Þá tvo daga sem ætlað er að dvelja í Laugum er völ á ýmsum skíðaferðum.Sé háskýjað og bjart er afar freistandi að stefna í dagsferð upp í Hrafntinnusker og vitja Stórahvers að vetrarlagi og sjá Torfajökul í vetrarbúningi. Hlutar leiðarinnar eru nokkuð á fótinn svo á bakaleið reynir svolítið á skíðaleikni leiðangursmanna en nauðsynlegt er að þátttakendur hafi meðferðis svokölluð skíðaskinn til þess að ganga á upp brattar brekkur.
Annar möguleiki er að stefna austur úr Laugum og halda inn á brúnir Jökulgils í nágrenni Skalla og horfa yfir afkima gilsins í vetrarklæðum.
Einnig mætti hugsa sér að skríða á skíðum austur í Kýlinga ef til vill alla leið austur í Jökuldali og inn að Kirkjufellsvatni og kanna hina fjölmörgu afkima, gil og dalverpi sem leynast á þessum slóðum. Svo koma menn þreyttir og sælir með rjóðar kinnar í skála að kvöldi og ylja lúin bein í heitum læk og skiptast svo á sögum á kvöldvökunni yfir seinni kakóbollanum.
Þessi gönguskíðaferð er ekki sérstaklega erfið í samanburði við margt sem menn taka sér fyrir hendur í þessum efnum og enginn þarf að bera þungar byrðar. Þetta hentar því ágætlega þeim sem hafa kynnst þessum heillandi ferðamáta og vilja reyna sig í lengri ferðum. Æskilegt er að allir séu á stálkantaskíðum og sæmilega vel á sig komnir.
til baka


















