Laugavegurinn
Dagsetning: 30.6.2010
Brottfararstašur: Mörkin 6 kl. 8:30
Višburšur: Laugavegurinn
Erfišleikastig:



Lżsing:
S-4
HÁLENDIÐ
Laugavegurinn
30. júní. - 4. júlí, 7. - 11. júlí, 14. - 18. júlí, 18. - 22. ágúst, 5 dagar
Fararstjórar: Ingimar Einarsson, Pétur Guðmundsson og Hjalti Björnsson.
Gengið um Laugaveginn sem er vinsælasta gönguleið landsins. Fjölbreytt landslag, m.a. háhitasvæði, sandar, ár (brúaðar og óbrúaðar) og skóglendi.
1. dagur, miðvikudagur: Brottför með rútu frá Mörkinni 6 kl. 8:30 og ekið í Landmannalaugar. Gengið er samdægurs í skálann í Hrafntinnuskeri. Kvöldganga um nágrennið.
2. dagur: Gengið um Kaldaklofsfjöll, jafnvel á einn tind ef veður leyfir, og í skálann við Álftavatn.
3. dagur: Á þessari dagleið er komið við í Hvanngili, Bláfjallakvísl vaðin og arkað yfir sanda á leið í skálana á Botnum í Emstrum. Markarfljótsgljúfur skoðað.
4. dagur: Vaða þarf Þröngá á leiðinni til Þórsmerkur þar sem gist verður síðustu nóttina eftir sameiginlega grillmáltíð sem er ekki innifalin í verði.
5. dagur: Morgunganga áður en haldið er af stað til Reykjavíkur.
Verð: 48.000 / 53.000
Innifalið: Rúta, gisting, trúss og fararstjórn.
Laugavegurinn er vinsælasta gönguleið landsins og sú leið sem laðar til sín flesta erlenda ferðamenn sem á annað borð koma til Íslands til þess að ferðast gangandi.Įstæðan fyrir vinsældum Laugavegarins er geysilega fjölbreytt landslag á leiðinni. Fyrst liggur leiðin gegnum litadýrð líparítsins í Landmannalaugum og fjöllum Torfajökul gegnum háhitasvæði og öskrandi gufuhveri við Stórahver uns komið er í Hrafntinnusker með sínum sérstæðu hveragiljum, íshellum og glampandi hrafntinnumelum.
Síðan suður úr Kaldaklofsfjöllum yfir á móbergssvæðið þar sem hvassbrýnd fjöll rísa yfir víðáttumiklum söndum og jökulfljót belja í gljúfrum. Síðasta daginn er svo gengið um gróna ása og kjarrskóga Þórsmerkur þar sem birkið ilmar og teygir sprota sína saman yfir höfðum göngumanna.
Dagleiðir á Laugaveginum eru ekki mjög erfiðar, alls er leiðin um 56 km og gengið er á fjórum dögum svo lengstu dagleiðirnar eru 16-17 km.
Į leiðinni er gist í skálum Ferðafélags Íslands í fjölþjóðlegu samfélagi fjallamanna úr öllum heimshornum og myndast oft mjög skemmtileg stemmning á kvöldvökum þegar þjóðirnar staðreyna að hjörtum mannanna svipar saman í Súdan og Grímsnesinu eins og skáldið sagði.
Laugavegurinn var fyrst farinn sem fjögurra daga skipulögð gönguferð árið 1979 þegar Kristinn Zóphóníasson tók að sér leiðsögn nokkurra hópa fyrir Ferðafélag Íslands en Kristinn var ötull fararstjóri á þessum árum.
Įður höfðu einstakir hópar harðsnúinna ferðalanga farið leiðina en óbrúaðar ár á Emstrum svo og Kaldaklofskvísl voru lengi töluverður farartálmi.
til baka
Leit
Mynd


















