Beint į leišarkerfi vefsins
Aftur į forsķšu vefs

Borgfirsku Alparnir meš allt į bakinu. Tjaldferš

Feršir - RSS
Nśmer: S-7
Dagsetning: 2.7.2010
Brottfararstašur: Mörkin 6 kl. 9
Višburšur: Borgfirsku Alparnir meš allt į bakinu. Tjaldferš
Erfišleikastig: Erfišar og langar dagleišir (jafnvel yfir 10 klst.) gengiš ķ fjalllendi meš allt į bakinu • mį bśast viš erfišum įm • ašeins fyrir fólk ķ mjög góšri žjįlfunErfišar og langar dagleišir (jafnvel yfir 10 klst.) gengiš ķ fjalllendi meš allt į bakinu • mį bśast viš erfišum įm • ašeins fyrir fólk ķ mjög góšri žjįlfunErfišar og langar dagleišir (jafnvel yfir 10 klst.) gengiš ķ fjalllendi meš allt į bakinu • mį bśast viš erfišum įm • ašeins fyrir fólk ķ mjög góšri žjįlfunErfišar og langar dagleišir (jafnvel yfir 10 klst.) gengiš ķ fjalllendi meš allt į bakinu • mį bśast viš erfišum įm • ašeins fyrir fólk ķ mjög góšri žjįlfun
Lżsing:

S-7

VESTURLAND 

Borgfirsku Alparnir með allt á bakinu. Tjaldferð 

2.-4. júlí, 3 dagar

Fararstjóri: Auður Kjartansdóttir

Fjalllendið milli Snæfellsness og Borgarfjarðar, Dala og Mýra er lítt þekkt almenningi. Margbreytilegt fjalllendi og heiðarlönd setja svip á svæðið en þó ekki síður öll vötnin, frá Hlíðarvatni í Hnappadal að Hreðavatni í Norðurárdal.

1. dagur, föstudagur: Brottför frá Mörkinni 6 kl. 9 og ekið að Hlíðarvatni og hefst gangan þar um kl. 13 við Hlíð. Gengið á Geirhnjúk og norður fyrir Hítarvatn. Tjaldað þar við Tjaldbrekku.

2. dagur: Gengið upp Austurárdal fyrir norðan Tröllakirkju. Gengið á Tröllakirkju, síðan áfram eftir Mjóadal í Langavatnsdal þar sem tjaldað verður fyrir norðan vatnið.

3. dagur: Gengið Vatnsendagil og Landamerkjagil og síðan norðan Vikravatns niður Kiðárgljúfur að Hreðavatni og Bifröst. Á Bifröst verður snædd sameiginleg máltíð. Þar er hægt að fara í sturtu og heitan pott. Rúta til Reykjavíkur. 

Verð: 25.000 / 30.000

Innifalið: Rúta, kvöldverður að Bifröst, fararstjórn.

Að baki fjallanna sem blasa við þegar ekið er um Borgarfjörð og Mýrar leynist undurfagurt landslag með fáförnum dölum, dularfullum vötnum þar sem sagt er að skrímsli séu á sveimi og gleymdum eyðibýlum.
Ferðafélag Íslands hefur vakið athygli á þeim ferðamannaslóðum sem þarna er að finna en 2009 kom út smárit sem ber nafnið Vatnaleiðin -gönguleiðir milli Hnappadals og Norðurárdals. Þar er fjallað ítarlega um svæðið sem þessi ferð liggur um.
Fararstjóri í þessari ferð er Auður Kjartansdóttir, mikill reynslubolti í fjallgöngum og útivist. Þessi leiðangur er bakpokaleiðangur þar sem gengið er með allan búnað, tjöld og nesti um brött fjallaskörð yfir fjöll og firnindi. Þátttakendur þurfa því að vera í sæmilegu formi og vel útbúnir. Hámarksánægja af leiðangri eins og þessum fæst aðeins ef maður er ekki eins og púlshestur í svitalöðri undir byrðunum allan tímann.
Fyrsti náttstaðurinn í Tjaldbrekku við Hítarvatn er sérlega fallegur en umhverfi vatnsins er stórbrotið og hrikalegt með vindsorfnu móbergi í steinrunnum tröllamyndum. Hítardalur og Hítarvatn er sögusvið margvíslegra þjóðsagna og þar er að finna tröllskessuhellir og ummerki eftir útlaga og margt forvitnilegt.
Daginn eftir er síðan gengið á Tröllakirkju sem er meðal tignarlegustu fjalla á þessum slóðum áður en haldið er niður Mjóadal meðfram hinni fögru Mjóadalsá og niður á grösugar sléttur í botni Langavatnsdals. Hér voru naut höfð í hagagöngu fyrrum og þá hafa ferðalög um dalinn ekki verið eins hættulaus og þau eru í dag.
Langavatn er undurfagurt fjallavatn og Langavatnsdalur mikill unaðsreitur. Þótt steinsnar sé niður í byggð að þjóðvegi með byljandi umferð er fátt í Langavatnsdal sem minnir á búsetu mannsins. Á leiðinni þangað er gengið að Háleiksvatni sem er afskekkt fjallavatn í 539 metra hæð yfir sjó. Bersi goðlausi nam land í Langavatnsdal og bjó á Torfhvalastöðum og síðan hefur verið fátt um búsetu manna í þessum fagra eyðidal. Þó eru til sögur af erfiðu mannlífi hér þegar reynt var að búa á hverju heiðarkoti og hér dó fólk úr hungri í koti sínu í byrjun nítjándu aldar.

Seinasta daginn er gengið að baki fjalla um ósnortnar slóðir framhjá Vikravatni og niður með Kiðá uns komið er niður að ilmandi kjarrskógum Hreðavatns og þar tekur siðmenningin við á ný með heitum pottum og þægindum. Þar er gott að sitja en þótt líkaminn sé kominn til byggða er sálin enn í óbyggðum.


 

til baka

Ašalstyrktarašili FĶ

Stušningsašilar FĶ

Forsķša »

Feršir » Feršir FĶ

Stjórnborš

Forsķša vefsins Stękka letur Minnka letur Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Sumarleyfisferš ķ Héšinsfjörš

Veldu feršafélag