Beint į leišarkerfi vefsins
Aftur į forsķšu vefs

„Žar rķkir feguršin ein ..." - fyrri hluti

Feršir - RSS
Nśmer: S-8
Dagsetning: 3.7.2010
Brottfararstašur: Ķsafjöršur
Višburšur: „Žar rķkir feguršin ein ..." - fyrri hluti
Erfišleikastig: Erfišar og langar dagleišir (jafnvel yfir 10 klst.) gengiš ķ fjalllendi meš allt į bakinu • mį bśast viš erfišum įm • ašeins fyrir fólk ķ mjög góšri žjįlfunErfišar og langar dagleišir (jafnvel yfir 10 klst.) gengiš ķ fjalllendi meš allt į bakinu • mį bśast viš erfišum įm • ašeins fyrir fólk ķ mjög góšri žjįlfunErfišar og langar dagleišir (jafnvel yfir 10 klst.) gengiš ķ fjalllendi meš allt į bakinu • mį bśast viš erfišum įm • ašeins fyrir fólk ķ mjög góšri žjįlfunErfišar og langar dagleišir (jafnvel yfir 10 klst.) gengiš ķ fjalllendi meš allt į bakinu • mį bśast viš erfišum įm • ašeins fyrir fólk ķ mjög góšri žjįlfun
Lżsing:

S-8

HORNSTRANDIR                                                                                              

„Þar ríkir fegurðin ein ..." - fyrri hluti

Jökulfirðir, víkur, skörð og fuglabjörgin miklu 

3.-7. júlí, 5 dagar

Fararstjóri: Sigríður Lóa Jónsdóttir

Hámarksfjöldi: 18

Hér gefst kostur á ferð sem skiptist í tvo hluta. Síðasti dagur fyrri hluta og fyrsti dagur síðari hluta skarast. Boðið er upp á að fara í alla ferðina 3.-11. júlí (9 dagar), eða einungis í fyrri hluta hennar (5 dagar) eða síðari hlutann (5 dagar).

A. Fyrri hluti: 3.-7. júlí.

Upphaf og lok þessarar ferðar er í Jökulfjörðum. Gengið verður um fáfarin skörð, einnig á fuglabjörgin miklu og í víkurnar sem að þeim liggja. Í ferðinni verður gengið með allan búnað og vistir, nema hvað tjöld og vistir fyrir daga 3-5 verða flutt í Hornvík. Gist verður í húsi í Hlöðuvík í eina nótt og í tjöldum í þrjár nætur. Þeir sem ætla að halda áfram í síðari hlutann dagana 7.-11. júlí geta látið senda sér vistir í Hrafnfjörð.

1. dagur, laugardagur: Siglt frá Ísafirði að Steinólfsstöðum í Veiðileysufirði. Gengið um

Hlöðuvíkurskarð (472 m) til Hlöðuvíkur og gist þar í húsi.

2. dagur: Gengið í Hælavík, á Hælavíkurbjarg, um Hvannadalsskarð í Hvannadal og á Langakamb. Leið liggur síðan um Rekavík bak Höfn og til Hornvíkur þar sem verður tjaldað til tveggja nátta. Þar bíða tjöld og vistir til næstu daga sem flutt hafa verið sjóleiðina.

3. dagur: Litast um í Hornvík og gengið á Hornbjarg.

4. dagur: Gengið um Rangalaskarð (587 m) í Rangala í Lónafirði, þar sem verður tjaldað.

5. dagur: Bátur sækir fólk og farangur í Rangala og siglir í botn Hrafnfjarðar. Þeir sem kjósa að ljúka ferð á þessum degi halda áfram með bátnum til Ísafjarðar, hinir fara í land í Hrafnfirði og hefja síðari hluta ferðarinnar. Vistir fyrir síðari hlutann koma með bátnum.

Verð fyrir fyrri hluta: 38.000 / 43.000

Verð fyrir fyrri og síðari hluta: 64.000 / 69.000

Innifalið: Sigling, gisting í Hlöðuvík, flutningur á farangri í Hornvík og fararstjórn.


 

til baka

Ašalstyrktarašili FĶ

Stušningsašilar FĶ

Forsķša »

Feršir » Feršir FĶ

Stjórnborš

Forsķša vefsins Stękka letur Minnka letur Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Framhjagangan mikla Heydalsa

Veldu feršafélag