Ķ fótspor śtilegumanna og galdramanna į Ströndum - Feršir FĶ
Nśmer: S-14Dagsetning: 12.7.2010
Brottfararstašur: Noršurfjöršur
Višburšur: Ķ fótspor śtilegumanna og galdramanna į Ströndum
Erfišleikastig:




Lżsing:
S-14
HORNSTRANDIR
Ķ fótspor útilegumanna og galdramanna á Ströndum
12.-18. júlí, 7 dagar
Fararstjórar: Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir
Ķ þessari ferð er ætlunin að þræða strandlengjuna frá Norðurfirði til Reykjarfjarðar nyrðri.
Žátttakendur mæta til Norðurfjarðar sunnudaginn 11. júlí og gista á Valgeirsstöðum. Möguleiki að hópurinn flytji farangur fyrsta daginn í Ófeigsfjörð, annars er farangur borinn milli annarra gististaða. Hámarksfjöldi: 20
1. dagur, mánudagur: Gengið um Ingólfsfjörð til Ófeigsfjarðar og tjaldað.
2. dagur: Gengið í Drangavík og tjaldað við Drangavíkurá.
3. dagur: Gengið í Bjarnarfjörð og tjaldað.
4. dagur: Gengið í Reykjarfjörð um Skjaldabjarnarvík.
5.-6. dagur: Dvalið í húsi í Reykjarfirði við göngur, sund og glens og gaman í bland við sögulegan fróðleik frá heimamönnum.
7. dagur: Siglt til Norðurfjarðar sunnudaginn 18. júlí.
Verð: 40.000 / 45.000
Innifalið: Sigling, gisting og fararstjórn.
Við hefjum ferðina á gistingu á Valgeirsstöðum í Norðurfirði. Þar hefur Ferðafélag Íslands komið sér upp frábærri aðstöðu í gömlu íbúðarhúsi og verið er að innrétta fjárhúsin til að taka á móti ferðamönnum. Valgeirsstaðir eru áfangastaður sem nýtur vaxandi vinsælda.
Frá Valgeirsstöðum er gengið yfir Eiðið milli Hlíðarhúsafjalls og Krossnessfjalls yfir að strönd Ingólfsfjarðar og gengið með fjörum að Eyri í Ingólfsfirði. Þar er ákjósanlegur áningarstaður í gamla síldarþorpinu, fyrrum stóriðju þessarar eyðibyggðar og Íslands alls. Nú ráða fúinn og ryðið þar aðallega ríkjum en margvíslegar minjar er enn að sjá um fyrri stórveldistíma.
Frá Eyri er gengið fyrir fjarðarbotninn og síðan lagt á Ingólfsfjarðarbrekku sem Þorvaldur Thoroddsen landkönnuður sagði að væri brattasti fjallvegur á Íslandi þegar hann fór um Strandir í lok nítjándu aldar. En gatan er traust og vel merkt og brattinn er fljótt að baki og þaðan hallar niður að stórbýlinu í Ófeigsfirði.
Við sláum tjöldum okkar á afbragðs tjaldstæði og setjumst svo að kaffiborði heimamanna og seðjum hungrið á heimabökuðum kræsingum. Síðan gætum við farið í gönguferð upp að Rjúkanda þar sem boðaföll steypast fram af heiðinni. Þar efra sjást og menjar um gamla rafstöð í Húsá sem áhugavert er að skoða.
Daginn eftir axla ferðalangar sín skinn og kveðja heimamenn í Ófeigsfirði eftir að gengið með þeim um heimalandið og séð með eigin augum hvernig sannir Strandamenn nytja hlunnindin.
Frá Ófeigsfirði liggur leiðin út að Hvalsárfossi en Hvalsáin er vatnsmesta á Vestfjarða og sem betur fer brúuð. Þaðan er gengið fyrir Hrúteyjarmúla og inn í Eyvindarfjörð sem er stuttur og hrjóstugur. Í fjarðarbotni steypist Eyvindarfjarðará fram í stórkostlegum flúðum og er sem betur fer brúuð.
Síðan er gengið undir hamraþiljum Skerjasundsmúla í Drangavík. Í botni Drangavíkur þarf að vaða grunnan ós og þá er komið í tjaldstað á grónum grundum þar sem Drangaskörðin blasa við og ef við erum heppin fáum við að sjá miðnætursólina skína á hinar tignarlegu hamrahallir.
Drangaskörð séð úr tjaldstað í Drangavík
Daginn eftir verður gengið eftir fjöru undir dröngunum fögru og svo um Signýjargötuskarð yfir og þaðan undir Drangafjalli heim að Dröngum. Þar sitja synir og afkomendur Kristins á Dröngum staðinn öll sumur og kannski hittum við kjaftfora Strandamenn í hlaðinu.
Frá Dröngum er gengið áfram norður fyrir mynni Meyjardals þar sem vaða þarf yfir Meyjará og þá er skammt í tjaldstað nálægt Fornaseli á grónum bölum við fjöruna hlaðna rekaviði þar sem æðarfuglinn úar í kvöldlogninu og leiðangursmenn eru fullkomlega hamingjusamir.
Frá Fornaseli liggur leið okkar inn með Bjarnarfirði og hér þarf að gæta að sjávarföllum því vatnsmikill Bjarnarfjarðarós fellur til sjávar í fjarðarbotni og best að vaða hann á leirunum þegar er að minnsta kosti hálffallið út. Þá ætti hann ekki að vera dýpri en í mjóalegg en kaldur vel því skammt er upp í Drangajökul sem sér ósnum fyrir vatni.
Žegar Bjarnarfirði sleppir komum við í hina kyngimögnuðu Skjaldarbjarnarvík. Þar eru rekaviðarbeðjur hærri og meiri en víðast annars staðar og þar er galdramaðurinn Hallvarður Hallsson grafinn og við vottum leiði hans virðingu okkar og fáum gott leiði og óhappalausa ferð í staðinn samkvæmt alþýðutrúnni.
Śr Skjaldabjarnarvík liggur leið vor yfir Sigluvíkurháls yfir í Sigluvík. Ef veðrið er gott má leggja af sér byrðar á hálsinum og ganga fram á Geirólfsgnúp sem er einn besti útsýnisstaður á Hornströndum öllum.
Śr Sigluvík er stutt ganga heim í Reykjarfjörð en fyrst þarf að vaða Reykjarfjarðarós sem getur verið vatnsmikill en er aldrei farartálmi. Í Reykjarfirði gista menn í gömlu íbúðarhúsi sem er afar heimilislegt og fyrsta sundferðin í snarpheitri lauginni í Reykjarfirði verður áreiðanlega kærkomin eftir nokkurra daga göngu undir byrðum.
Leiðangurinn dvelst svo tvo daga í Reykjarfirði og ef veður er hagstætt verður gengið á Hrolleifsborg í Drangajökli annan daginn en hinn notaður til könnunarleiðangra að Hvítsöndum og í Þaralátursfjörð og ef til vill alla leið undir Fururfjarðarnúp.
Seinasta daginn kemur Reimar sæúlfur og höfuðkapteinn á Ströndum og sækir hópinn og siglir á örskotsstundu meðfram ströndinni sem við gengum á mörgum dögum. Svo kveðjast menn með tárum á bryggjunni í Norðurfirði og hverfa aftur á vit siðmenningarinnar en verða fyrir lífstíð tengdir þessum fagra landshluta órjúfanlegum böndum. Og fjöllin og fjaran seiða mann til sín aftur og aftur.
Hópur ferðalanga frá FÍ í túninu í Drangavík sumarið 2009.
Sumarið 2009 viðraði sérlega vel í þessari ferð FÍ og hér eru ferðalangar að taka sér salt fótabað í Eyvindarfirði.
til baka
Leit
Mynd




















