Beint į leišarkerfi vefsins
Aftur į forsķšu vefs

Mišfellstindur

Feršir - RSS
Nśmer: H-1
Dagsetning: 30.4.2010
Brottfararstašur: Śtfall Skeišarįr
Višburšur: Mišfellstindur
Erfišleikastig: Erfišar og langar dagleišir (jafnvel yfir 10 klst.) gengiš ķ fjalllendi meš allt į bakinu • mį bśast viš erfišum įm • ašeins fyrir fólk ķ mjög góšri žjįlfunErfišar og langar dagleišir (jafnvel yfir 10 klst.) gengiš ķ fjalllendi meš allt į bakinu • mį bśast viš erfišum įm • ašeins fyrir fólk ķ mjög góšri žjįlfunErfišar og langar dagleišir (jafnvel yfir 10 klst.) gengiš ķ fjalllendi meš allt į bakinu • mį bśast viš erfišum įm • ašeins fyrir fólk ķ mjög góšri žjįlfunErfišar og langar dagleišir (jafnvel yfir 10 klst.) gengiš ķ fjalllendi meš allt į bakinu • mį bśast viš erfišum įm • ašeins fyrir fólk ķ mjög góšri žjįlfun
Lżsing:

H-1

Miðfellstindur 

30. apríl -2. maí, föstudagur - sunnudags

Fararstjóri: Guðmundur Jónsson

Hámarksfjöldi: 14

Ganga á Miðfellstind er ögrandi verkefni fyrir brattgengustu fjallgöngumenn. Miðfellstindur er sunnan í Vatnajökli, nærri Þumli ofan Morsárdals. Ekið er austur á föstudegi, alla leið að útfalli Skeiðarár þar sem hún féll að meginhluta við mynni Morsárdals. Gengið inn í Kjós og gist þar. Á laugardeginum er gengið á Miðfellstind. Sunnudagur til vara ef veðurútlit er ekki gott. Undirbúningsfundur auglýstur síðar á heimasíðu FÍ.

Verð: 12.000 / 15.000

Innifalið: Fararstjórn.

Skráning og greiðsla fyrir 15. april

Miðfellstindur rís fyrir botni Morsárdals og er 1420 metra hár. Vatnajökull liggur fast að fjallgarðinum sem Miðfellstindur er hluti af og nokkru vestar rís Þumall, snarbrattur klettastapi, allfrægur. Leiðin á Miðfellstind liggur upp með svokölluðu Meingili og síðan inn Hnútudal um brattar skriður og klungur og brattar fannir. Þegar komið er upp á brúnir er leiðangursmenn staddir í skarði rétt við rætur Þumals og þá er tekin 180 gráðu beygja og haldið til austurs eftir brúnum áleiðis á Miðfellstind.
Leiðangursmenn þurfa að bera tjöld og búnað frá upphafi ferðar við útfall Skeiðarár og í tjaldstað í mynni Kjósar sem er 8-9 km leið.
Daginn eftir er gengið á tindinn og þegar komið er til baka í tjöldin eru búðir teknar saman og haldið aftur að bílum. Leiðin frá tjaldbúðum upp á Miðfellstind er líklega um 10 km. fram og til baka og ca. 1250 m hækkun. Við það má síðan bæta 8-9 km. göngu undir byrðum að bílum svo ljóst er að toppdagurinn verður í erfiðara lagi.
Žetta er talsvert krefjandi leiðangur og skulu þátttakendur vera þokkalega vel á sig komnir.  En fæst af því sem gefur lífinu raunverulegt gildi fæst án nokkurrar fyrirhafnar.
Žegar fjallgöngumaður stendur á tindinum eftir langa og erfiða göngu sem ef til vill hefur reynt á hann bæði líkamlega og andlega þá er hann kóngur um stund. Ekki aðeins yfir sínu eigin lífi heldur ef til vill yfir öllum heiminum.


 


 

til baka

Ašalstyrktarašili FĶ

Stušningsašilar FĶ

Forsķša »

Feršir » Feršir FĶ

Stjórnborš

Forsķša vefsins Stękka letur Minnka letur Senda žessa sķšu Prenta žessa sķšu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Sumarleyfisferš ķ Héšinsfjörš

Veldu feršafélag