Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fjörður og Látraströnd

Ferðir - RSS
Númer: S-16
Dagsetning: 15.7.2010
Brottfararstaður: Áshóll í Grýtubakkahreppi kl. 10:30
Viðburður: Fjörður og Látraströnd
Erfiðleikastig: Nokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfunNokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfunNokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfun
Lýsing:

S-16

NORÐURLAND                                                                          

Fjörður og Látraströnd 

15.-18. júlí, 4 dagar

Fararstjóri: Sigríður Bergvinsdóttir

Fjögurra daga ferð í Fjörður. Keyrt verður út í Hvalvatnsfjörð, gengið í Þorgeirsfjörð, þaðan í Keflavík, því næst í Látur og Látraströndin gengin heim. Tjald, svefnpoki og dýna verða trússuð á hestum, annað þarf fólk að bera sjálft. Kvöldgöngur og kvöldvökur.

1. dagur, fimmtududagur: Þátttakendur mæta kl.10:30 að bænum Áshóli í Grýtubakkahreppi. Gangan hefst að Gili og gengið úr Hvalvatnsfirði yfir háls í Þorgeirsfjörð að Þönglabakka þar sem tjaldað verður til einnar nætur. Eftir kvöldverð (sem er innifalinn) verður kvöldganga upp á Þorgeirshöfða og jafnvel varðeldur í fjöruborðinu; allt eftir veðri og vindum.

2. dagur: Nú liggur leiðin úr Þorgeirsfirði yfir Blæjukamb í Blæjuna, þar sem útsýni er niður í Keflavík. Býlið í Keflavík er talið hafa verið eitt það afskekktasta í Vestur-Evrópu og þar er gamalt skýli. Í Keflavík sjá allir um sig sjálfir hvað kvöldmat varðar.

3. dagur: Leiðin liggur úr Keflavík á Uxaskarð og þaðan niður Fossdal að Látrum. Þar er mjög gott skýli. Að Látrum verður slegið upp grillveislu. Varðeldur og kvöldvaka.

4. dagur: Látraströndin gengin um Látrakleifar. Þegar komið er að Svínárnesi bíða bílar sem ferja hópinn síðasta spölinn í Áshól.

Verð: 37.000 / 42.000

Innifalið: Akstur, trúss og fararstjórn.


 

til baka

Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Framhjagangan mikla Heydalsa

Veldu ferðafélag