Beint á leiðarkerfi vefsins
Fara á forsíðu

SUÐURLAND: Fimmvörðuháls frá Skógum yfir í Þórsmörk - Ferðir FÍ

Ferðir - RSS
Númer: H-2c
Dagsetning: 10.7.2010
Brottfararstaður: Mörkin 6 kl. 8
Viðburður: SUÐURLAND: Fimmvörðuháls frá Skógum yfir í Þórsmörk
Erfiðleikastig: Nokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfunNokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfunNokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfun
Lýsing:

H-2

SUÐURLAND: Fimmvörðuháls frá Skógum yfir í Þórsmörk 

12.-13. júní, 26.-27. júní, 10.-11. júlí, 24.-25. júlí, 7.-8. ágúst

Ekið að morgni laugardags kl. 8 frá Mörkinni 6 að Skógum undir Eyjafjöllum og gengið yfir Fimmvörðuháls og í  Þórsmörk. Rútan flytur farangur í Langadal og sækir göngumenn þar  sem fleir koma niður í Bása. Gist í Skagfjörðsskála. Farið í morgungöngu á sunnudegi og haldið til Reykjavíkur um hádegi. Sameiginleg grillveisla um kvöldið, varðeldur og kvöldvaka.

Verð: 22.000 / 25.000

Innifalið: Gisting, rúta, fararstjórn og grillveisla. 

 

Leiðin yfir Fimmvörðuháls er ein vinsælasta gönguleið landsins. Hún liggur milli Skóga undir Eyjafjöllum yfir fjöll og firnindi niður á Goðaland  og Þórsmörk. Leiðin er 28-29 km. löng og fer hæst í tæplega 1100 metra hæð. Efst á hálsinum milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls er allra veðra von og verður því að búa sig í samræmi við það. Þótt leiðin sé að jafnaði vel merkt með stikum við skýran stíg þá er oft mikill snjór efst á hálsinum og þá getur verið vont að sjá stikur sem standa upp úr snjónum.
Tveir skálar eru á Fimmvörðuhálsi. Fimmvörðuskáli stendur á kambi þar sem hæst ber og er hann í eigu Útivistar en ofarlega sunnan í hálsinum er eldri skáli sem almennt er kallaður Baldvinsskáli og er nú í eigu Ferðafélags Íslands.
Vinsælt verkefni er að ganga yfir hálsinn í einum áfanga án mikilla byrða og eru farþegar að jafnaði fluttir að Skógum og ganga til norðurs yfir hálsinn. Fyrsti áfanginn liggur upp með Skógá upp með hinum fræga Skógafossi en ofar í heiðinni eru fjölmargir aðrir fossar í ánni og afar fjölbreyttir að gerð og útliti. Nöfn þeirra eru sumpart undarleg eins og Kæfufoss og Rollutorfufoss en aðrir heita skiljanlegri nöfnum eins og Hestavaðsfoss, Steinbogafoss, Gluggafoss og Skálabrekkufoss.
Þegar komið er norður af hálsinum er farið niður Bröttufönn niður að Heljarkambi sem er mjór klettakambur sem tengir meginfjallið við Morinsheiði. Í Heljarkambi er einstigi og keðja fest í klett göngumönnum til halds og trausts. Síðan liggur leiðin fram Morinsheiði, niður Heiðarhorn og að Kattarhryggjum en þar liggur stígurinn eftir mjóum kambi milli brattra og djúpra gilja og reynir sá hluti leiðarinnar nokkuð á lofthræðslu þeirra sem hún sækir á. Síðan er komið niður í Strákagil á Goðalandi og þaðan er stutt yfir aurana í Langadal þar sem Ferðafélag Íslands hefur höfuðbækistöðvar sínar í Þórsmörk.


 

til baka

PÓSTLISTASKRÁNING

Með reglulegu millibili sendir skrifstofa FÍ út yfirlit yfir félagsstarf, ferðir og annað það sem spennandi kann að vera fyrir áhugfólk um ferðalög og náttúru.
Eitt fjall á vikuFerðafélag barnannaSkráðu þig í FerðafélagiðLaugavegurinnSkálar - yfirlitskortFerðaáætlun 2010Safnaðu fjöllum með FÍ

Slóðin mín:

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd