Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Þjórsárver - Náttúruperla á heimsvísu

Ferðir - RSS
Númer: S-18
Dagsetning: 20.7.2010
Brottfararstaður: Mörkin 6 kl. 8
Viðburður: Þjórsárver - Náttúruperla á heimsvísu
Erfiðleikastig: Nokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfunNokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfunNokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.)  oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld • gengið í fjalllendi • getur þurft að vaða erfiðar ár • þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfun
Lýsing:

S-18

HÁLENDIР                                                                               

Þjórsárver - Náttúruperla á heimsvísu 

20.-25. júlí, 6 dagar

Fararstjórar: Gísli Már Gíslason og Þóra Ellen Þórhallsdóttir.

Hámarksfjöldi: 25

Heimsókn í hin ómótstæðilegu Þjórsárver. Fararstjórar eru meðal fremstu vistfræðinga landsins. Gist í tjöldum.

1. dagur, þriðjudagur: Brottför kl. 8 frá Mörkinni 6. Ekið inn að mótum Hreysiskvíslar og Þjórsár og farið yfir Þjórsá á báti. Gengið að Arnarfelli, u.þ.b. 10 km leið og tjaldað þar.

2. dagur: Gengið á Arnarfell hið mikla (1137 m). Ef aðstæður leyfa er mögulegt að fara einnig á Arnarfell hið litla. Ef ekki viðrar til fjallagöngu verður hugað að gróðurfari í Arnarfellsbrekkum sem liggja í 600 m og eru rómaðar fyrir fjölbreyttan og fagran gróður.

3. dagur: Tjöldin tekin upp og gengið með allan farangur eftir Arnarfellsmúlum framan við Múlajökul. Múlarnir eru vel grónir og verða fleir skoðaðir. Í múlunum eru fornar reiðgötur og þar bjuggu Eyvindur og Halla 1761. Þar eru kvíslar á leiðinni sem þarf að vaða en ekki er vitað fyrirfram hvernig þær eru yfirferðar. Helstu torfærur eru Arnarfellskvísl og Miklakvísl. Tjaldað verður undir Nautöldu. Ganga á sléttlendi um 15 km.

4. dagur: Umhverfið skoðað. Gönguferð á Ólafsfell (926 m) inn að Jökullóni. Ef skyggni er gott getur fólk gengið á Lónstind (1199 m). Það gætu verið um 6 km inn að lóninu frá tjaldstað. Einnig verður útbúinn baðstaður í Jökulkrika og göngumenn geta skolað af sér eftir fjögurra daga göngu. Rétt er að vera með sundföt. Gist á sama stað.

5. dagur: Gengnir ca. 6 km niður í Oddkelsver og náttúrufar skoðað. Blautakvísl vaðin sunnan Nautöldu. Þar er að sjá mýrar, flæðiengjar, tjarnir, rústir og aðrar helstu vistgerðir Þjórsárvera. Komið við á tófugreni. Gengið til baka í Nautöldu og gist á sama stað.

6. dagur: Gengið sem leið liggur vestur frá Nautöldu, vaðið yfir Blautukvísl norðan Steingrímsöldu. Gengið eftir söndum í Setur þangað sem hópurinn verður sóttur um kl. 16.

Gönguleið um 12 km. Þaðan verður ekið um Kerlingarfjöll til Reykjavíkur.

Verð: 42.000 / 47.000

Innifalið: Rúta, sigling og fararstjórn.


 

til baka

Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Sumarleyfisferð í Héðinsfjörð

Veldu ferðafélag