Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Bíll og bakpoki með Páli Ásgeiri

Ferðir - RSS
Númer: S-23
Dagsetning: 23.7.2010
Brottfararstaður: Núpar í Fljótshverfi kl. 13
Viðburður: Bíll og bakpoki með Páli Ásgeiri
Erfiðleikastig: Miðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.) oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár • þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfunMiðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5 – 7 klst.) oft í hæðóttu landi • bakpoki þarf ekki að vera þungur • engar eða auðveldar ár • þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun
Lýsing:

S-23

SUÐURLAND

Á vit fossanna í Djúpárdal 

Bakpoki og bíll með Páli Ásgeiri

23.-25. júlí, 3 dagar

Fararstjórar: Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir

1. dagur, föstudagur: Þátttakendur hittast á Núpum í Fljótshverfi og þaðan er brottför kl. 13. Gengið er frá Núpum fram Núpaheiði eftir bökkum Brúarár og nafnlausir fossar og fögur gil skoðuð. Tjaldað við Yxná eftir u.þ.b. 12 km göngu.

2. dagur: Gengið upp með Yxnárgljúfrum yfir Kálfafellsfjall og niður í Fossabrekkur í botni Djúpárdals. Stórkostleg fossasinfónía Djúpár og fjölmargra uppspretta er eitt af best varðveittu leyndarmálum Íslands og mögnuð upplifun að koma á staðinn. Tjaldað við Fossabrekkur eftir u.þ.b. 12 km göngu með 400 metra hækkun.

3. dagur: Gengið eftir botni Djúpárdals um Blóðhraun og Laxárdal til byggða við Kálfafellsstað. Fossar í Djúpá og Laxá ásamt stórkostlegu stuðlabergi við Blómsturvelli eru hápunktar dagsins. Vaðið yfir Brúará á Berjavaði og gömlum götum fylgt út að Núpum þar sem þátttakendur borða saman heimalagaða kjötsúpu í lok ferðar eftir rúmlega 20 km göngu.

Verð: 24.000 / 29.000

Innifalið: Trúss, fararstjórn og kvöldverður síðasta kvöldið.

Eitt af best geymdu leyndarmálum í náttúru Íslands er hin stórkostlega fossasinfónía í botni Djúpárdals í Fljótshverfi. Þar steypist hið vatnsmikla jökulfljót Djúpá fram í mikilfenglegum fossum og fellur saman við blátærar og syngjandi bergvatnsár sem flæða upp úr úfnu hrauninu.

Sumarið 2009 nánar tiltekið dagana 23 til 25 júlí verður gengið á vit þessara náttúruperla í þriðja sinn á vegum Ferðafélags Íslands en undanfarin tvö sumur hefur umrædd ferð verið meðal þeirra mest sóttu á vegum félagsins. Þetta er þriggja daga létt gönguferð þar sem farangur er fluttur með bíl og þátttakendur bera því aðeins hlífðarfatnað og nesti til dagsins.

„Ég á eftir að sjá hvort það verður sungið eins mikið og í fyrra,“ sagði Páll Ásgeir fararstjóri sem segist hlakka til að sýna enn fleirum dásemdir Djúpárdals.

Ferðalangar koma á eigin vegum að Núpum í Fljótshverfi föstudaginn 10. júlí og þar hefst gangan klukkan eitt. Fyrsta daginn er gengið um Núpaheiði meðfram stórkostlegum gljúfrum Brunnár og dularfullir fossar hennar skoðaðir. Síðan liggur leiðin meðfram Brunná og meðal annars skoðaður staður þar sem þessi vatnsmikla á rennur í örmjórri gjá en Brunná er talsvert vatnsmikil jökulá sem kemur undan Síðujökli. Síðan er skipt um á og fögru gljúfri Brúarár fylgt uns komið er í tjaldstað. Í kvöldgöngu þann dag er farið að nafnlausum fossi í Brunná sem talinn er líkjast Svartafossi í Skaftafelli.

Þriðja daginn ganga leiðangursmenn niður hinn tignarlega Djúpárdal og skoða fossa í Djúpá á leið til byggða en leggja síðan lykkju á leið sína og nálgast byggð gegnum Laxárdal og skoða stórkostlega fossa og stuðlaberg í gljúfrum Laxár og einnig stuðlaklettana innan við Blómsturvelli sem er eitt hið fjölbreyttasta á landinu þó lítt þekkt sé.

Loks er komið niður í sveit á grænar grundir, vaðið yfir Brúará á hinu forna Berjavaði og fylgt fornum gömlum götum út að Núpum á ný. Þar bíður leiðangursmanna gómsæt og ríflega útilátin kjötsúpa, sannkölluð gangnamannasúpa elduð af húsfreyjum í Fljótshverfi úr spikfeitum heimaalningum og rennur ljúflega niður að loknu ferðalagi.

 

Fararstjórar eru hjónin Páll Ásgeir Ásgeirsson og Rósa Sigrún Jónsdóttir.


 

til baka

Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Ferðir » Ferðir FÍ

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Sumarleyfisferð í Héðinsfjörð

Veldu ferðafélag