Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Fimmvörðuháls

Skógar-Þórsmörk (Fimmvörðuháls á milli Eyjafjalla- og Mýrdalsjökuls)

Vegalengd 22 km, áætlaður göngutími um 9 klst., lóðrétt hækkun/lækkun 1000m. Leiðin liggur frá Skógum undir Eyjafjöllum, milli Eyjafjalla- og Mýrdalsjökuls, yfir til Þórsmerkur. Hér er um að ræða eina allra vinsælustu gönguleið á Íslandi en e.t.v. þá viðsjárverðustu sakir snöggra breytinga sem geta orðið á veðri á hvaða árstíma sem er. Það getur verið blítt og stillt veður á láglendi en þegar komið er upp á háhálsinn getur skollið á svarta þoka svo að ekki sér handa skil. Á leiðinni eru tveir skálar, annar Baldvinsskáli  í eigu FÍ og Fimmvörðuhálsskáli  í eigu Útivistar.

 
Ekið af stað með rútu  á laugardagsmorgni að Skógum. Ferðalangar ganga frá Skógum yfir hálsinn og niður í Þórsmörk, að skála Ferðafélagsins í Langadal þangað sem komið erum kvöldið og gist um nóttina. Á sunnudegi er ekið til Reykjavíkur.



Skiptimarkaður


Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Gönguleiðir » Fimmvörðuháls

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

I nagrenni Landmannalauga

Veldu ferðafélag