Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Gistibókanir

Bókanir

Nauðsynlegt er að panta og greiða gistingu með mánaðar fyrirvara til að tryggja gistipláss og forðast óþægindi. Skrifstofa F.Í. í Mörkinni 6, 108 Reykjavík veitir nánari upplýsingar og tekur við pöntunum.

  • Sími 568 2533

  • myndsími 568 2535

  • netfang fi@fi.is

  • pöntunarform

Gistipöntun fyrir hópa, yfir háannatíma, verður að staðfesta með eins mánaðar fyrirvara. Einstaklingar sem panta gistingu í skálum þurfa sömuleiðs að staðfesta gistingu með því að greiða gistigjald einum mánuði fyrirfram.

Þeir sem hafa staðfesta gistipöntun ganga fyrir. Félagsmenn F.Í. og deilda þess ganga annars fyrir með gistingu, séu pláss laus. Félagar skulu framvísa félagsskírteini.

Verð

Gistigjald hinna ýmsu skála er mismunandi, en hér má sjá verðskrá. Börn og unglingar 7-18 ára í fylgd forráðamanna greiða hálft gjald. Börn 6 ára og yngri gista ókeypis í skálum F.Í. Við flest sæluhús FÍ er hægt að tjalda.

Afbókanir

Nauðsynlegt er að panta og greiða gistingu með minnst mánaðar fyrirvara til að tryggja gistipláss og forðast óþægindi.  Við bókun á skálagistingu skal gefa upp kreditkortanúmer til tryggingar greiðslu. Ef skálagisting er afpöntuð gilda eftirfarandi relgur:

Afbókun 14 dögum fyrir brottför: 80% endurgreiðsla af gistigjaldi

Afbókun 7 dögum fyrir brottför: 50% endurgreiðsla

Ekki er endurgreitt ef afbókað er innan viku frá dagsetningu.



Skiptimarkaður


Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Skálar » Gistibókanir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

I nagrenni Landmannalauga

Veldu ferðafélag