Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Hrafntinnusker

Skáli F.Í. í Hrafntinnuskeri, Höskuldsskáli, var reistur 1977. Hann stendur í 1027. m y.s. Meðal áhugaverðra staða í nágrenninu eru íshellar, Landmannalaugar og Álftavatn. Hrafntinnusker er fyrsti viðkomustaður eftir Landmannalaugar á gönguleiðinni um Laugaveginn.

 

Hér má sjá myndasyrpu sem sýnir skálann í Hrafntinnuskeri og umhverfi hans.

 

Created with flickr slideshow from softsea.

Staðsetning:

  Breidd: Lengd:
Hnatthnit (WGS-84): 63.933261 19.168080
UTM (WGS-84): 7090867.1 7589807.4
Hnatthnit (Hjörsey 1955): 63.933571 19.168477
UTM ( Hjörsey1955): 7091076.0 75897691.6

 

Skálinn er jarðhæð með risi. Á jarðhæð eru anddyri, eldhús og tveir salir. Í risi eru tvö svefnloft og herbergi  skálavarðar.

Í öðrum salnum eru 6 eins manns kojur með dýnum og 6 tvíbreiðar, í hinum eru 4 tvíbreiðar kojur. Á svefnloftunum eru  dýnur á gólfi. Í vondum veðrum er skálaverði heimilt að nýta öll gólf á jarðhæð til gistingar sé þess þörf. 

Gestur þarf að vera þess viðbúinn að nýta tvíbreiða koju með öðrum og að fleiri séu samtímis í gistingu en þeir 52 sem að jafnaði er ætlað að vera þar að hámarki.

Húsið er hitað með jarðvarma og er heitt allt árið. Meðan vörður er í húsinu er kalt vatn í krana í eldhúsinu. Að jafnaði er varsla í júlí og ágúst.

Utan vörslutíma verður að sækja vatn ofan í gil fyrir vestan húsið eða bræða snjó. Rafmagn er til ljósa. Rofi er í anddyri. Straumur er á raflögn í 6 klst. eftir að ýtt hefur verið á rofann. Slökkvari er á lömpunum. Ljós og vatnsdælur nýta sólarorku. Fara á sparlega með rafmagn. Gashellur eru í eldhúsi og þær tengdar gaskútum allt árið.

N E Y Ð A R talstöð er í anddyri.

Kamar er í nágrenni hússins. Að vetri til er notaður kamar, sem innangengt er í úr anddyri. Kamrarnir eru ekki vatnssalerni, pappír er að jafnaði á kömrum.

Komið getur fyrir að sú tækni, sem beitt er við öflun hita, rafmagns og vatns, bili. Við þær aðstæður er reynt að ná til viðgerðarmanna. Hafa verður þá í huga að skálinn er í 1027 m hæð og aðkoma  að honum erfið fyrir bíla, stundum ófær og viðgerðarmenn í 200 km fjarlægð.

  • Í eldhúsi eru pottar, pönnur og leirtau.

  • Ró á að vera í skálanum frá kl. 24 - 07 nema vörður samþykki annað, matargerð í eldhúsi á þessum tíma er óheimil.

  • Reykingar eru bannaðar innandyra.

Umhverfi skálans er sandur. Við umgang berst mikill sandur inn í húsið. Þurrkið vel undan skóm áður en gengið er inn í anddyri og farið aldrei inn í eldhús á útiskóm. Ráðlegt er að hafa inniskó með sér. Vinsamlegast aðstoðið vörð við að halda húsinu hreinu. Sérstaklega er því beint til fararstjóra að eiga frumkvæði að þeirri aðstoð. Sé ekki varsla, verða gestir að sjá um að húsið sé hreint, þegar frá því er farið.

Tjaldstæði er á sandinum neðan skálans. Tjaldgestir hafa aðgang að vatni úr krana við skálann.

 Ferðamenn verða að taka allt rusl sitt með sér. Gámar eru í Landmannalaugum og við Hvanngil. Hendið ekki rusli í kamar eða felið það undir steini. Hreint land - fagurt land.

Rekstur skála við Hrafntinnusker er dýr og því mikilvægt að gestir greiði fyrir notkun skálans og þess er honum fylgir. Félagið birtir ár hvert skrá yfir gjöld fyrir gistingu í húsi og tjaldi svo og fyrir notkun snyrtiaðstöðu húss, eða sólpalls þegar daggestir eiga í hlut.
Skálavörður innheimtir gjöldin. Sé hann ekki við, er þess óskað, að greiðslan verði sett í bauk í anddyri.  

 



Skiptimarkaður


Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Skálar » Hrafntinnusker

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

I nagrenni Landmannalauga

Veldu ferðafélag