Landmannalaugar
F.Í. reisti fyrst sæluhús í Landmannalaugum 1951 en núverandi hús er að stofni til frá 1969. Það stendur í um 600 m y.s., við jaðar Laugahrauns og rétt við heitar uppsprettur, sem vinsælar eru til baða. Húsið er á tveimur hæðum,; niðri er stór svefnskáli, eldhús, húsvarðarstofa, rúmgóð forstofa og geymsla. Uppi eru 3 svefnloft og lítið kvistherbergi. Samtals er pláss fyrir 75 manns í kojum og á dýnum. Húsið er upphitað en gas er notað til eldamennsku. Þar eru pottar og pönnur, leirtau og hnífapör. Auk gistiskála er þar stórt hreinlætishús með sturtum og vatnssalernum.
Tjaldstæði eru á flötunum í grennd við skálann. Heit, náttúruleg laug er í skömmu göngufæri frá skála.
Gönguleiðin um Laugaveginn á upphaf sitt í Landmannalaugum en í næsta nágrenni skála eru einnig fjölmargir og fjölbreyttir göngumöguleikar. Nefna má göngu á Bláhnúk, á Brennisteinsöldu, á Skalla, Hatt og Reykjakoll, í Suðurnámur og á Háöldu og í Brandsgil eða Sveinsgil. Þeir sem lengra vilja leita geta farið í Jökulgil eða upp á Torfajökul.
Sjá myndir af skálum FÍ á Laugaveginum
Sími frá 1. júlí til 30. september 860-3335
Nýjar auglýsingar
Leit
Mynd






















