Nýidalur - Skálar Ferðafélags Íslands

Skálar Ferðafélags Íslands í Nýjadal
Skálar F.Í. í Nýjadal eru á miðjum víðáttumiklum auðnum miðhálendis Íslands. Þeir standa við mynni Nýjadals, SV undan Tungnafellsjökli, við fjallveg F26 yfir Sprengisand, í um 800 m h.y.s.
Þar eru tveir gistiskálar sem rúma 120 manns í svefnpokagistingu og eldhús með gaseldavélum, eldhúsáhöldum og borðbúnaði. Þarna er rúmgott tjaldsvæði og aðstaða fyrir dagsferðalanga til að neyta nestis úti og inni. Rennandi vatn er á sumrin, góð salerni og sturtur.
Skálaverðir FÍ, landverðir Vatnajökulsþjóðgarðar og hálendisgæsla Landsbjargar veita ferðalöngum aðstoð, upplýsingar og þjónustu þarna á sumrin. Víðsýni er mikið yfir öræfi Sprengisands og merktar gönguleiðir eru upp á Tungnafellsjökul, inn í Nýjadal (Jökuldal) og inn í Vonarskarð. Vegir opna yfirleitt síðari hluta júní og eru opnir fram í september og áætlunarrútur fara um Sprengisand að sumri. Sími skálavarða FÍ frá 1. júlí til 31. ágúst er 860-3334.

Vegur yfir kaldan eyðisand
Skálar F.Í. standa við mynni Nýjadals, SV undan Tungnafellsjökli og fjallinu Þvermóði, á melbarði sunnan Nýjadalsár, við fjallveg F26 yfir Sprengisand, í um 800 m h.y.s. GPS-hnit eru: N 64°44.130 og V 018°04.350.
Aðkomuleiðir eru eftir fjallvegi F26, Sprengisandsvegi, sem er eingöngu fær fjórhjóladrifnum bílum. Helstu farartálmar á honum eru tvær óbrúaðar jökulár, Nýjadalsá rétt hjá skálanum og Hagakvísl um 5 km norðar. Minnst 4 tíma akstur er frá Reykjavík, rúmar 3 klst frá Selfossi, Akureyri, Varmahlíð eða Mývatni og 5-6 klst frá Öskju.
Að sunnan lýkur malbiki við Vatnsfellsvirkjun skammt ofan hálendismiðstöðvarinnar í Hrauneyjum, þar sem er síðasta bensínstöð sunnanmegin. Þaðan er 110 km akstur í Nýjadal, sem tekur um 2 klst á grófum malarvegi. Um 250 km eru milli bensínstöðvanna á Hrauneyjum og Fosshóli í Bárðardal, sem er síðasta bensínstöð norðanfrá. Að norðan kemur Sprengisandsvegurinn upp úr Bárðardal og hefst fjallvegurinn nærri Aldeyjarfossi, sem er fallegur foss í Skjálfandafljóti um 100 km norðan Nýjadals. Þaðan er um 2 klst akstur í Nýjadal eftir grófum malarvegi. Aðrar aðkomuleiðir að norðan eru fjallvegir upp úr Skagafirði og Eyjafirði og frá Öskju. Leiðin frá Öskju er aðeins fær sæmilega háum fjórhjóladrifnum bílum og er svonefnd Gæsavatnaleið aðeins fær vel útbúnum jeppum. Sandbleytur og jökulár geta verið miklir farartálmar, auk þess sem leiðir þar eru illa grýttar á köflum.
Á sumrin fer áætlunarrúta um Sprengisand milli Mývatns og Landmannalauga með tengingu við áætlun til og frá Reykjavík.

Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur
Í Nýjadal eru tveir gistiskálar sem rúma 120 manns í svefnpokagistingu og eldhús með gaseldavélum, eldhúsáhöldum og borðbúnaði. Þarna er rúmgott tjaldsvæði útigrill, borð og bekkir og aðstaða fyrir dagsferðalanga til að neyta nestis úti og inni.
Hægt er að kaupa kaffi og meðlæti að sumri, en annars er reiknað með að allir gestir séu sjálfbjarga um aðföng og matseld. Rennandi vatn er á sumrin, góð salerni og sturtur.
Að aka yfir Sprengisand á einum degi fer hvorki vel með farartæki né ferðalanga. En, að stoppa og gista í Nýjadal og njóta þessarrar sérstæðu náttúru gerir förina fyllilega þess virði. Ekki má vera svo upptekinn af áfangastaðnum hinu megin á landinu að menn gleymi að njóta ferðalagsins. Til þess eru skálarnir og öll aðstaða FÍ í Nýjadal.

Nestistími

Horft yfir Snapadal í Vonarskarði af toppi Eggju
Sérstaða skálans í Nýjadal felst í því að vera á miðju víðerni miðhálendis Íslands, milli stórra jökla. Þaðan eru langar vegalengdir yfir svartan sand, grátt grjót, úfið hraun, jökulár, bergvatnsár og smá gróðurbletti. Þarna upplifa ferðalangar áhrif þess að ferðast yfir kaldan eyðisand. Til þess þarf þó að stíga út úr fjórhjóladrifna bílnum og ganga aðeins um. Horfa yfir þessa ótrúlegu víðáttu af eyðisandi, þar sem trén skyggja ekki á útsýnið. Staldra aðeins við og upplifa sjálfan sig sem eitt af sandkornum jarðarinnar. Stikaðar gönguleiðir eru upp á Tungnafellsjökul með miklu útsýni og inn í Vonarskarð að jarðhitasvæði og inni í Nýjadal (Jökuldal) má finna stóran hluta íslenskra hálendisplantna.

Jarðhitasvæðið í Vonarskarði rétt við hlíðar Tungnafellsjökuls

Þvermóður og Tungnafellsjökull að hausti
Þjóðvegurinn um Sprengisand lokast eftir að snjóa tekur að hausti og opnar ekki aftur fyrr en um mitt sumar eftir að snjór og leysingavatn eru á burt og vegurinn þornaður. Að vetri til er ferðast yfir svæðið á sérútbúnum jeppum, vélsleðum og snjóbílum og eins hefur skíðagöngufólk lagt leið sína um svæðið. Annar skálanna í Nýjadal er hafður ólæstur allt árið og getur fólk leitað skjóls í honum. Fjölmennari hópar geta fengið lykil að hinum skálanum líka. Mælt er með því að bóka gistingar fyrirfram á skrifstofu FÍ og greiða þar fyrir þjónustuna, en einnig er baukur á staðnum fyrir aðstöðugjöld.
Vetrarferðalangar geta nýtt sér svefnpláss og eldhúsaðstöðuna með gasi til hitunar og eldunar. Ganga þarf vel frá eftir heimsóknir utan sumartíma, gæta þess að lofti undir dýnur, gluggum sé krækt aftur og hurðum lokað traustlega. Allar vatnsleiðslur eru tæmdar að hausti og vatnssalernum læst. Hægt er að sækja vatn í nærliggjandi læk áður en hann leggur, en eftir það aðeins að bræða snjó. Vetrarklósett er á kamri við enda klósetthúsanna.

Nýidalur á síðsumarskvöldi
- Vatnajökulsþjóðgarður http://www.vatnajokulsthjodgardur.is/
- Áhugamannavefur um Vatnajökulsþjóðgarð http://www.seevatnajokull.net/
- Ferðafélag Íslands http://www.fi.is/forsida/
- Save travel http://www.safetravel.is/Is/
- Veður á miðhálendinu http://www.vedur.is/#spasvaedi=10
- Færð á vegum http://www.vegagerdin.is/umferd-og-faerd/faerd-og-astand/faerd-og-vedur/faerd-um-allt-land/island1.html
- Ástand fjallvega http://www.vegagerdin.is/vegakerfid/Fjallvegir/
- Vegalengdir http://www.vegagerdin.is/vegakerfid/vegalengdir/lengdir?id=140
- Áætlunarrútur http://www.re.is/IcelandOnYourOwn/

















