Þjófadalir

Í Þjófadölum stendur lítið sæluhús sem reist var 1939. Það stendur undir Rauðkolli og skammt frá Þröskuldi við gamla reiðveginn um Kjöl um Þjófadali. Húsið er á tveimur hæðum, lítil forstofa og stofa þar inn af og svefnloft yfir helmingi hússins. Þar eru rúmstæði og dýnur fyrir 12 manns alls. Í Þjófadölum eru eldunaráhöld og borðbúnaður. Kamar er skammt frá húsinu en sorp verða gestir að taka með sér. Frá skálanum eru stuttar og skemmtilegar gönguleiðir. Má þar nefna, Hrútfell, Fögruhlíð og Jökulkrók við jaðar Langjökuls. Einnig er mjög skemmtileg leið á Rauðkoll og Oddnýjarhnjúk. Skáli FÍ í Þjófadölum er eini skáli félagsins sem hefur staðið óbreyttur frá því að hann var byggður 1939. Fóstrar skálans nú hafa gætt hann lífi, þannig að hann er mjög hlýlegur og vinalegur skáli heim að sækja.

















