Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Þórsmörk

Skagfjörðsskáli stendur í mynni Langadals á Þórsmörk, á sléttri grund austan lækjarins, skammt frá Krossá. Frammi fyrir húsdyrum stendur Valahnúkur en þangað ganga þeir sem vilja sjá næsta nágrenni. Meðal áhugaverðra staða í nágrenni má nefna Stórenda, Stangarháls, Hamraskóga, Húsadal, Tindfjallajökul og Eyjafjallajökul. Gönguleiðir eru fjölbreyttar og fagrar og möguleikar miklir og m.a. ljúka flestir göngu um Laugaveginn í Langadal.

Skálinn er á tveimur hæðum, á neðri hæð eru tvö lítil eldhús, stór matsalur og tvær svefnstofur auk rúmgóðrar forstofu. Á efri hæð eru svefnrými með kojum. Alls rúmast 75 manns í kojum. Auk gistiskála er gott hreinlætishús með vatnssalernum og sturtum, viðdvalarhús fyrir dagsgesti, lítill svefnskáli (fyrir 2 - 4) og verslunarhús. Skálinn er kyntur með olíuvélum, sem einnig eru notaðar til eldamennsku. Þar eru pottar, pönnur og leirtau og skálaverðir á sumrin. Sími frá 15. maí til 30. september er  893 1191.

Sjá myndir úr Langadal og Þórsmörk

Sjá myndir af skálum FÍ á Laugaveginum



Skiptimarkaður


Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Skálar » Þórsmörk

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Ferð á Þverártindsegg

Veldu ferðafélag