Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu vefs

Staðarlýsing - Þórsmörk

Hálendistunga úr móbergi vestur frá Mýrdalsjökli (Merkurjökli), sundurskorin af smádölum, giljum og hvömmum. Krossá markar Þórsmörk bás að sunnan en Þröngá og Markarfljót að norðan. Birkiskógur er mikill í dölum og á hæðum og breiðist ört út. Uppblástur hefur verið allmikil, einkum að vestanverðu (á Merkurrana) en hefur nú verið stöðvaður.

Ásbjörn Reyrketilsson nam land á Þórsmörk og helgaði landið Þór að sögn Landnámabókar. Þrjú bæjarstæði eru nú þekkt þar. "Á miðbænum" bjuggu Björn inn hvíti og Valgerður Þorbrandsdóttir að sögn Njáls sögu. Í Húsadal var síðast búið á árunum 1802-1803.

 

Afréttur á Þórsmörk var frá miðöldum að hálfu í eign Oddakirkju og að hálfu bændaeign í Fljótshlíð. Margar kirkjur áttu þar skógarítök. Árið 1919 rituðu 40 bændur í Fljótshlíð skógræktarstjóra bréf þar sem farið var fram á að Skógrækt ríkisins tæki að sér vörslu Þórsmerkur og girti landið af því það væri í stórhættu vegna uppblásturs. Var landið afhent Skógræktinni og Mörkin ásamt nálægum afréttum sunnan Krossár girt árið 1924. Við friðun hefur landið tekið miklum stakkaskiptum til bóta, uppblástur hefur verið haminn að mestu og gróðri fleygt fram. Á Þórsmerkursvæðinu hafa fundist um 170 tegundir háplantna auk fjölmargra tegunda af mosum, fléttum og skófum.

 

 

Fjallasýn af Þórsmörk er mikil og fögur til Mýrdalsjökuls, Eyjafjallajökuls og Fljótshlíðar. Vandfundin er öllu fjölbreytilegri fegurð á Íslandi og minnir í ýmsu á Alpadali. Þórsmörk er með vinsælustu helgardvalarstöðum landsins og eru þangað reglubundnar ferðir á sumrin, m.a. á vegum Ferðafélagsins.

Leiðin inn í Þórsmörk er aðeins fær stórum, traustum og aflmiklum bílum og er einatt varasöm. Flugvöxtur í ám og sandbleytur hafa oft valdið ferðamönnum erfiðleikum og slys orðið í ám. Er því ávallt varúðar þörf. Göngubrýr hafa verið settar þannig að hægt er að komast hjá því að aka yfir verstu tálmana en þá þarf að ganga nokkurn spöl. Sæluhús Ferðafélagsins er í Langadal.



Skiptimarkaður


Aðalstyrktaraðili FÍ

Stuðningsaðilar FÍ

Forsíða »

Skálar » Þórsmörk » Staðarlýsing

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Information in other languages

  • Information in English
  • Informationen auf Deutsch

Mynd

Sumarleyfisferð í Héðinsfjörð

Veldu ferðafélag