Uppbygging skálans
Bygging skála Ferðafélags Íslands í Þórsmörk 1954
Jón J. Víðis, landmælingamaður hjá Vegagerðinni teiknaði skála Ferðafélags Íslands, sem byggður var í Langadal í Þórsmörk sumarið 1954 og verður því hálfrar aldar gamall um þessar mundir.
Skálinn hlaut nafnið Skagfjörðsskáli.
Vegagerðin flutti byggingarefnið inn í Þórsmörk á tveimur 10 hjóla trukkum sínum í tveimur ferðum. Myndirnar 9 hér á eftir eru allar teknar af flutningnum og byggingarframkvæmdum. Fyrstu 6 myndirnar, sem eru af flutningunum tók Baldur Kristensen, bílstjóri hjá Vegagerðinni. Síðustu 3 myndirnar sem eru af húsinu, tók Jón J. Víðis.
Tekið saman í júní 2004, Jakob Hálfdanarson.
|
|


























